domingo, 17 de diciembre de 2006

Hver gefur HÍ leyfi til að eyðileggja jólin?

dauði og djöfull %$#"%/(&/%$#"!"#$%&/()(/&%$#"$%&/U()/&%$#"$%&/()/&%$#"!
Mér finnst eins og ég sé búin að vera hlekkjuð við helvítis skrifborðið í heila eilífð og ég er bara búin að fara í 1 próf !! Ég á 2 eftir, er búin að vera að læra fyrir prófið á morgun í 4 daga en er samt bara búin að undirbúa mig fyrir 70% af prófinu og það ekki einu sinni almennilega :( og ég hef ekki einu sinni getað byrjað að læra fyrir prófið sem er á miðvikudaginn ! Ég hef semsagt tímann frá 16:30 þegar prófinu líkur á morgun til 9:00 á miðvikudagsmorgunn til að læra allt námefni annarinnar í hugfræði - í sannleika sagt langar mig bara að leggjast í gólfið, henta tölvunni út um gluggann, tæta niður glósurnar mínar og GRENJA af pirringi. Ég er svo pirruð út í sjálfa mig að það hálfa væri nóg, pirruð yfir að hafa verið svona mikill slugsi í allan vetur og pirruð af því það koma jól eftir viku og ég hef varla haft tíma til að taka eftir því að það sé desember :| Þessi desembermánuður er hér með úrskurður sá ömurlegasti frá því ég fæddist. Svo finnst manni allir vera búnir í prófum ! helvítis !! Jæja útrásin búin - maður getur víst bara gert það besta úr þessu, ætla að halda áfram að þylja upphátt ritgerðarefni (btw valdi bara 11 af 26 og krossa mína putta í von um að hann geri ekki stórar breytingar á prófinu í ár). Eru engir sálfræðinemar sem lesa þetta blogg og eru til í að segja mér að ástandið sé jafn súrt hjá þeim???
Íris Grýla

5 comentarios:

Anónimo dijo...

Ekki vera súr, vertu kát og hress. Eftir TVO daga muntu vera komin í meiri jólastemmingu og huggulegheit en margir fá nokkrusinni að upplífa :-) Hertu upp hugann, það er góður árangur ef maður nær að lesa helminginn, ekki satt. Mamma ;-)

Anónimo dijo...

Æ, þetta gengur yfir, sem betur fer eru þessi próf bara tvisvar á ári ! Mundu bara að draga upp jákvæðni og brosið þitt :o) Þá gengur allt svo vel hjá manni :o)
En ég var að spá hvort ég mætti skreppa aðeins til þín í oggu smá stund annað kvöld, langar að gauka smá jólakonfekti að þér og gefa þér jólknús áður en þú rýkur úr bænum :o) Bara í smá stund :o)
Gangi þér vel með lesturinn ! Bjalla á þig á morgun sæta :o)

Íris dijo...

Eftir þessa miklu reiðiræðu þá ákvað ég bara að slaka aðeins á og skellti mér í sund, eftir yfir 40 ferðir fann ég ró og frið :Þ og geðheilsuna líka :Þ og sit núna, með kveikt á kertum og einni jólaseríu sem mér tókst að grafa upp, pollróleg ákveðin í að gera bara mitt besta því ég get varla gert meira en það :) (lengsta setning sem ég hef á ævinni skrifað !)

Hlakka svo til að fara upp í bústað mamma :D

og hlakka til að sjá þig á morgun Bekka ;) get þá maulað á jólakonfektinu þínu annað kvöld á meðan ég reyni að koma sem mestri hugfræði í höfuðið á mér :Þ

Anónimo dijo...

Það eru allir í sömu sporum og þú, allavega ég! Mér skilst líka að þetta sé mjög algeng tilfinning í þessu fagi en svo reddast þetta alltaf einhvernvegin, held alveg örugglega að meðaleinkunin sé venjulega ekki undir 7.

4 tímar í prófið...verður spennandi að sjá hvernig það verður og hvort Friðrik hafi ákveðið að gerast nasty og breyta öllum spurningunum....þá er ég fallin :/

Íris dijo...

Úff já sama hér - ef hann breytir prófinu þá fæ ég líklegast bara 0 :O :Þ en gott að heyra að meðaleinkunnin sé svona há - maður bjargar sér þá alveg ef að maður verður heppin með spurningarnar !