Ég sit hérna með brauð með banana og eitthvað svakalegasta deja vu ever nema þetta er kannski ekki beint deja vu heldur urmull af ótrúlega góðum minningum : ) María á algjörlega heiðurinn að þessum rétti í mínum huga og í allt sumar á ferðinni borðuðum við fátt annað þá daga sem við vorum sem mest í lestunum. Brauð með banana, volgt flöskuvatn og nektarínur :Þ
Í hvert sinn sem ég fæ mér bita og loka augunum kemur eitthvað skemmtilegt upp í hugann. Troðfulla búðin í Gdansk þar sem við keyptum fyrsta ferðabananann en fyrsta bananabrauðið var þó borðað í Köben:Þ Lestarferðin til Ceske Budejovice þar sem ég var þreytt og grumpy og alveg að drepast úr ofnæmi og elsku besta systir mín bjó til bananabrauð handa mér :Þ Við vorum með landabréfabók með okkur og lítinn vasahníf og þetta var skurðbretti og brauð og bananahnífur alla ferðina. Ég man líka eftir strákunum sem voru með okkur í lestinni frá Zagreb til Split sem fannst bara það undarlegasta í heimi að borða brauð með banana en þeim fannst brauð með hunangi algjört lostæti :Þ
Fyrsta bananabrauðið í kóngsins Köben
Gdansk - búnar að kaupa banana :Þ
Í lestinni á leiðinni til Varsjár
Hin ofurfjölhæfa landabréfabók - virkaði líka sem spilaborð
María heldur fast utan um brauðið og bananann - Nóttin fræga á ganginum á leiðinni til Zagreb
Sama nótt, ég á svefnplássinu mínu með nektarínurnar og greinilega smá snickers :Þ
Sarajevo og við búnar að kaupa brauð og banana (veit ekki með skrítna svipinn ;))
Belgrad, Serbíu, við að bíða eftir lest 8 klst í brottför og við áttum engann pening eftir og bara þennan mat að borða :Þ
Ein besta ferðanóttin - brauð og bananar á borðinu og þessa nóttina gátum við RÉTT ÚR OKKUR - þvílíkur lúxus :Þ Komumst líka loks í sturtu þennan dag eftir að hafa verið á ferðinni í 4 daga :) Jafnast ekkert á við að vera drulluskítugur og illa sofin á ferðalagi.
My sister and I - Í Austurríki enginn banani né brauð þarna ;)
Jebb prófin eru greinilega að valda smá nostalgíu hérna : ) Prófunum fylgir svo líka að ég verð auðvitað að fara að spá hvernig ég ætla að eyða næsta sumri. Planið só far (og kallinn meira segja búinn að samþykkja það) er að skella mér til VENEZUELA :D
Spurning hvort að maður bæti þarna inn í e-s konar túr í S-Ameríku (ekki búin að spyrja kallinn hvort hann nenni að vinna fyrir því líka :Þ)
Nú vantar mig bara ferðafélaga, Marían mín verður víst nýflutt til Sverge og hefur nóg að gera við að koma sér þar fyrir svo ég efast um að hún sé game í S-Ameríkuferð svo ég spyr?? Anyone sem er hæfilega afslappaður og kærulaus, óhræddur og skemmtilegur :)
Jæja það er búið að taka mig örugglega hálftíma að skrifa þetta blogg :Þ Varð auðvitað að fara í gegnum allar myndirnar frá sumrinu :Þ Ágæt að taka hugann af bókunum og prófinu sem ég er að fara í eftir 5 daga !



5 comentarios:
hmmm, mjög freistandi... nema hvað Andri bannaði mér næstum að fara til Ítalíu í gær, sagði að ég ætti að vera að spara fyrir íbúð...
hehe já það kostar sitt að kaupa íbúð :Þ
Ég reikna með að flugið fram og til baka verði svona milli 100-140þús en fæði, gisting og annað er ódýrt þarna svo þetta verður ekkert rosarosa dýrt.
Bahahahha Já ég ELSKA brauð með banana !!!
Vááááá hvað við erum HVÍTAR í dk - er nú samt ekki frá því að ég sé orðin alveg eins núna :/
Skrítni svipurinn í Sarajevo er að okkur fannst e-h halló að vera brosandi fyrir framan niður skotið hús !
Ohhh vá hvað mig langar til Venezuela með þér Íris !!! Hvað ætlaru að vera lengi ?? Hvenær ætlaru að fara ? Og þetta kostar alls ekki mikið !!!:) Ætlaru í skóla næstu önn ? Því ég gæti kannski farið fyrir maí :D KANNSKI !
Ohhh sumarið þitt hefur verið svooo geggjað ! Ég væri sko til í að skella mér með þér, en ætli það verði ekki eftir nokkur ár, þegar er orðið aðeins þyngra í námsmannabuddunni minni ;o)
En gangi þér vel með lesturinn sæta !
Ohh þið eruð allar svo frábærar :) :*
Það lítur út fyrir að ég sé jafnvel komin með ferðafélaga :Þ Reyndar ekki í neitt S-Ameríkuferðalag en til Venezuela :Þ Þetta á allt eftir að koma betur í ljós á næstu mánuðum :)
Rebekka - þetta er þá díll ;) Ég sé okkur alveg fyrir mér á einhverju Roadtrippi um Bandaríkin, keyrandi einhvern kagga og gistandi á mótelum :Þ
Og Kristín - þú verður bara að bjóða mér með þér að hitta fjölskylduna þína á Ítalíu fyrst Andri leyfir ekki heimsferðalög næstu árin ;)
Publicar un comentario