domingo, 3 de diciembre de 2006

Föst milli tannanna

Þessi önn hefur runnið frá mér - Það fór allt of mikill tími í efasemdir og leiða en ég er sem betur fer að koma upp úr þessari niðursveiflu. Svo verður það bara að koma í ljós hvernig mér gengur í prófunum, ég er ekkert sérstaklega stressuð yfir að falla í einu né neinu, en eins og það er svo oft í HÍ þá veit maður aldrei : /
Ég er svo ákveðin núna að fara ekki í skóla næsta haust, algjörlega komin með ógeð. En ég er samt svo viss um það að ég muni greiða skólagjöldin :Þ Ég get bara varla hugsað mér að vera ekki í skóla þó ég kvarti og kveini hérna :) Spái að ég taki alla veganna heilsusálfræðina og kannski eitt annað fag til að ná námslánunum :Þ Ohh eða kannski að ég fari bara ekki neitt og geti notið þess að eiga próflausan desember mánuð og svo jól í Oxford hjá mömmu og pabba :Þ Jebb jól í útlöndum á næsta ári :) Ég var að horfa á skyrdós í gær og á henni stóð að hún rynni út 26. des. Ég alveg fussaði og sveiaði yfir því hvað þetta skyr dugar lengi, fannst sko vera alveg 1,5 mánuður í þetta :P Nahh svona meira eins og 3 vikur !
Jebb eftir 21 dag eru jólin. Eftir 24 daga erum við Orri búin að vera saman í 4 ár ! Eftir 17 daga er síðasta prófið mitt. Eftir 17 daga fer ég upp í jólabústað. Eftir 9 daga byrja ég í prófunum :/ Eftir 28 daga er árið 2006 BÚIÐ ! og eftir 1 dag á Kristín afmæli TIL HAMINGJU :D
Ég er sem betur fer eiginlega alveg búin með jólagjafastússið, bara 1 pakki eftir og ég veit hvað fer í hann. Ég læt svo Orra bara sjá um sínar 4 systur, ætla ekki að stressa mig á jólagjöfum í árið - Ætla að reyna að passa að taka ekki hið klassíska Írisarstresssyndrome sem felst í undarlegum draumum og skapskeytingum á saklausu fólki :Þ Þið þekkið þetta sem hafið orðið fyrir mér á stresstímum :Þ Dagur rauða nefsins er nýbúinn. Ég missti af sjónvarpsdagskránni (af því ég er búin að gleyma hvernig á að kveikja á sjónvarpinu mínu) en keypti 2 rauða nebba : ) Vona að sem flestir hafa gert slíkt hið sama. Svo er Kiva mér alltaf ofarlega í huga - er e-r hérna búin að skoða þetta?? Er að styrkja 3 verkefni núna - ætla að bæta við þetta svona í hverjum mánuði. 25$ fyrir skiptið er ekki mikið og ég get séð af því eins og stendur :) Ég á heima á Íslandi, Íslandinu góða SirÍ

1 comentario:

Anónimo dijo...

Já þetta ár hefur heldur betur flogið frá manni :o/ Kannski gerist þetta bara með aldrinum, tíminn líður hraðar þegar maður eldist, svo þegar maður er orðinn gamall þá fer þetta að hægast aftur.
Ég held að það verði heldur betur viðbrigði að vera ekki í skólanum, skrýtið að hugsa til þess að maður valla þekkir neitt annað yfir vetramánuðina. En það er mjög sæt tilfinning að þurfa ekki að eyða megninu af desember í stress og áhyggjur út af prófunum.
Ég er búin að skoða Kivi út frá síðunni þinni, mér finnst þetta rosalega sniðugt, en ég hef nú ekki styrkt neinn ennþá...
Nú fer þetta að verða eins og ritgerð, af því ég hef ekki heyrt svo lengi í þér ;o)
Heyrumst fljótlega og gangi þér vel með lesturinn *knús* Kv. Bekka