jueves, 14 de diciembre de 2006

Blogg2 í dag

Hehe jæja búin að fara í yoga og svartsýnin er flogin út um gluggann - tók mig líka til og endurskipulagði lestrarplanið og ég ætti alveg að komast yfir þetta allt saman :Þ
Fékk email áðan sem tilkynnti mér (til mikillar gleði) að ferðaáætlun Útivistar kemur út á morgun :D Þá get ég farið að hlakka til Útivistarræktarinnar sem byrjar í mars (og Rebekka með ;)) og farið að spá í ferðir sumarsins. Planið fyrir sumarið er að ganga á Hvannadalshnjúk og Heklu. Hekluferðin er venjulega í byrjun júlí svo ég ætti að ná henni áður en ég fer út. Hvenær gengið er á Hvannadalshnjúk veit ég ekki en ef ég næ ekki þeirri göngu þá ætla ég að taka einhverja jöklagöngu í staðinn - Mamma það er bannað að beila ! Svo eru náttúrulega aðalgöngufélagarnir mínir allir að flytja til útlanda næsta vor og sumar :( Kannski að Rebekka og Kristín taki bara við ;)
Hvannadalshnjúkur
Hekla
Svo ætla ég bara að fara að ákveða dag fyrir Oslóferðina um leið og ég er búin að fá námsáætlanir næstu annar í hendurnar og sé hvar ég finn glufu til að stinga af til útlanda :Þ
Og ég er bara varla að ná því ennþá að ég sé að fara til Venezuela næsta sumar ! Í lok júlí verða komin 5 ár frá því ég kom heim :Þ Ótrúlegt hvað tíminn líður -set inn nokkrar myndir hérna af hinum og þessum stöðum sem maður var á :Þ Útsýnismynd yfir Caracas
El Hatillo - svakalega fallegur hluti borgarinnar en ég fann enga almennilega mynd. Skólinn sem ég var í er held ég einhvers staðar þarna fyrir ofan á myndinni :Þ
El Ávila - líklega fyrsta fjallið sem ég labbaði upp á sjálfviljug :Þ
Parque del Este :) Æðislegur garður í miðri borginni þar sem maður flatmagaði heilu og hálfu dagana undir pálmatré :)
Sabana Grande - markaðsgata sem ég eyddi líka alveg ótrúlega miklum tíma (og líklegast peningum líka) á
Sambil, risa moll, 2 bíó, keila og við Svana þurftum kort til rata aftur út í fyrstu skiptin :Þ
Altamira
Ohhh svo góðar minningar :D hehe jæja nóg af nostalgíunni :Þ Er málið ekki að klára lesefni dagsins :Þ Ég virðist bara ekki geta hætt að hugsa um sumarið (síðasta eða næsta) á meðan ég er að reyna að halda einbeitingunni við bækurnar :Þ LaNegrita

6 comentarios:

Anónimo dijo...

Oh, alveg væri ég til í að fara með þér til venzuela! efast samt um að ég hafi efni á því þetta sumarið... en ég er til í að kíkja á nokkur fjöll, til þess fékk ég nú gönguskóna ;)

Anónimo dijo...

Hæ hæ vá það væri geggjað gamann að fara með þér til Venezuela :) ég fæ alveg fiðring í magann að sjá allar þessar myndir..
Enn af því að þú ert að tala um að fara upp á hnjúkinn þá eru daglegar ferðir upp á hann frá skaftafelli allt sumarið, Láttu mig vita það þar sem ég kom nú þangað 2x á dag í 5 sumur :)
kv svana

Íris dijo...

Ó frábært Svana þannig ég get þá alveg pottþétt farið á hnjúkinn fyrir ferðina :D Jæja nú er bara að koma sér í form, þrír mánuðir í Útivistarræktina og 6 mánuðir í sumarið - það ætti að duga :Þ

Haha já Kristín maður verður nú að nota skóna sína ;) við byrjum bara á Helgafellinu næst þegar færi gefst :)

Anónimo dijo...

Íris var að lesa bloggið fyrir neðan - þú getur ALLTAF hringt í mig og athugað hvort ég geti ekki komið í heimsókn til þín eða á kaffihús - hvað segiru um lördaginn ???

Íris dijo...

Takk sæta, mér líst vel á lördag ;) Ágætt að standa aðeins upp frá bókunum - ertu busy um kvöldið?

Anónimo dijo...

YES ! Ég get ekki beðið eftir því að fara skokka á fjöllin. Væri geggjað að fara með þér á Heklu, er það ekki ferðin 1. júlí sem þú ert að spá í ?? Reyndar tveggja skóaferð, en kannski ég verði komin í gírinn þá :o) Vona það, mig langar svo mikið að labba á Heklu....ohhh ég get ekki beðið eftir vorinu og byrja þramma með þér ! Ég vona að lesturinn gangi vel, sendi þér strauma á hverjum degi !
*knús* Bekka :o)