miércoles, 13 de diciembre de 2006

arko tsaksó

Skrítið hvernig suma daga er maður bara eins og undin tuska, orkan enginn. Ég er búin að vera þannig í dag : / Ég er nú samt búin að vera sitjandi yfir bókunum allan daginn en afköstin hafa verið með lélegasta móti : ( Ég er bara svo hrikalega orkulaus, allt sem ég geri virðist bara vera í slow-motion, kemst bara ekkert hraðar en það :Þ Ég skellti mér þó í sund áðan og syndi 1000m : ) Frá því ég fór fyrst mánudaginn í síðustu viku er ég búin að 4x vegalengdina :Þ Það er svo ótrúlega afslappandi að synda, hvað þá þegar maður er að læra undir próf ! 11 dagar til jóla og mér finnst bara ekkert vera að koma jól, það er ekkert skraut hérna heima, ég fer varla út úr húsi nema bara rétt til að kaupa smá í matinn eða æfa og heyri heldur enginn jólalög. Finnst það svolítið leiðinlegt, sérstaklega í dag þegar mig vantar greinilega smá hressingu ... Ætli maður reyni ekki bara að læra til svona 22, skelli sér snemma í rúmið og fái góðan nætursvefn og vonandi verður maður ferskari á morgun. Maður má ekki við mörgum svona dögum þegar maður þarf að leggja á minnið svona svaka magn eins og ég þarf að gera næstu vikuna : / :Þ Íris hin þreytta

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Um að gera að reyna taka sér gott frí og slaka á þegar maður er svona orkulaus, afköstin verða hvor eð er alltaf lítil ef manni líður illa og maður er þreyttur. Ég vona að þú hafir fengið góðan nætursvefn í nótt og þér gangi vel í dag við lesturinn sæta !

Anónimo dijo...

Ég segi það með þér, hvar eru jólalögin??? Neyðist maður að fara í Kringluna og Smáralind til að heyra jólalög? Aldrei hefði ég trúað því að ég segði þetta, en ég er virkilega farin að sakna Jólastjörnunnar í útvarpinu!