martes, 19 de diciembre de 2006

6 dagar til jóla :D

Eftir snappelsi gærdagsins þá verð ég nú að koma með eina frekar heilbrigða færslu :Þ Félagssálfræðirprófið var í dag og mér gekk bara ljómandi vel. Skrifaði 15 bls ! af texta og rétt náði að klára á þessum 3 tímum sem við fengum ! Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu þreyttur maður verður í höndinni af því að skrifa svona mikið, ég gat varla rennt upp úlpunni né sett lykilinn í skrána á bílnum með vinstri höndinni eftir prófið ! en það er búið að jafna sig :Þ Það er þó ekki mikill tími til að fagna því á miðvikudaginn er enn eitt erfitt próf :| - Hugfræðin. Eftir að vera búin að fá nokkur sjokk í kvöld yfir því hvernig ég ætlaði í ósköpunum að læra efni heillar annar á 1 degi þá var góðhjörtuð manneskja sem að bjargaði mér með því að láta mig fá öll svörin við gömlu prófunum :D Þannig ég ætla að læra þau svör utan og annað kvöld fer ég svo og hitti aðrar góðhjartaðar manneskjur sem ætla að leyfa mér að taka þátt í spjalli um efnið fyrir prófið ; ) Svo krossa ég bara mína putta og vona að þetta fleyti mér yfir 5 og ég nái þessu : / Jebb markmiðið er ekki háleitari en það í þetta sinnið :S Hafið þið annars spáð í pakkningum utan af vörum sem eru bókstaflega óopnanlegar ! Skinkur og allskyns álegg eru oft á þeim lista, það stendur alltaf "Opnist hér" en svo er ekki fræðilegur möguleiki að OPNA HÉR ! Annað sem er líka á þessum lista eru blessuðu prenthylkin í prentarann minn. Maður má þakka fyrir ef að manni tekst að opna pakkninguna án e-s konar vélaklippa ! Já og btw þá kostaði prentarinn minn 2500 kr en bara í þessum mánuði hef ég þurft að kaupa blekhylki fyrir 7500 kall !! Dýrt að vera í prófum : / Kallinn var sendur á stúfana í dag með jólagjafalistann minn og keypti handa mér gjöf - Nú þarf ofurforvitna Íris bara að hafa hemil á sér og kíkja ekki í heimabankann :Þ Hehe í gegnum árin hef ég átt erfitt með að hafa hemil á mér þegar kemur að jólagjöfunum, ætli Selma muni ekki best eftir því - alla veganna ein jólin vafði hún jólagjöfina mína svo vel inn í límband að ég var hálft aðfangadagskvöld að opna hana :Þ Við Orri skelltum líka upp tveim seríum og nú er orðið aðeins jólalegara hér á bæ. Pabbi bjargaði líka jólaskrautinu mínu úr geymsluprísundinni :) Jebb jólin eru að koma hér á bæ Sérstakar þakkir dagsins fær Rebekka fyrir að koma til mín færandi hendi með heimagert konfekt ! Er hægt að biðja um meira :* Veit ekki hversu oft ég hef nauðað í ykkur hérna um að koma með súkkulaði til mín ;) Rebekka greinilega sú eina sem hlustar ;) Buenas - Íris

1 comentario:

Anónimo dijo...

Frábært að þér skuli hafa gengið vel í prófinu - ég vissi að þú myndir rúlla þessu upp :)


Hlakka til að hitta þig á morgun vívívívívíví :D

En já ég kannast mjög svo við erfiðleika að opna skinkupakka - very stupid !!!