Af hverju virkar svona vel að berja í hluti sem að ískra, blikka eða gera eitthvað sem þeir eiga ekki að gera ! Ég þarf reglulega að lemja sjónvarpið mitt þegar það er í gangi svo hátíðni ískrið í því stoppi og nú hef ég uppgötvað það að ef ég lem lampann minn þá hættir hristingshljóðið sem að heyrist úr honum.
Reyndar virkar ekki að berja í hann til að fá peruna til að glóa en hún virðist bara gera það eftir sínum hentugleika þessa dagana. Síðan ég keypti nýja peru í lampann er þetta búið að vera stanslaust stríð ! Hún virkar bara eftir hentugleika, er með tveimur járnþráum sem stingast inn í lampann og ég þarf sífellt að vera að beygja þá og sveigja til að hún nái sambandi, stinga hálfa leið inn eða bara rétt svo eða alla leið. Fyrir utan allt þetta þá verður kvikindið alveg SJÓÐANDI heitt á nokkrum sekúndum - kannski að það sé orsökin fyrir því að puttarnir á mér eru allir að verða húðlausir ! Djöflapera - og það versta við þetta allt saman er að þegar ég keypti hana þá ætlaði ég að kaupa tvær en konan í búðinni SANNFÆRÐI mig um að ein dugði ! Hvenær sannfærir búðarfólk mann um að kaupa MINNA af þeim - en alla veganna ég hef ekki nennt eða dottið í hug að fara og versla aðra heldur lít ég á þetta sem stríð sem ég ætla svo sannarlega að vinna (ekki nema ég sé USA og peran Írak, þá er þetta greinilega alveg tapað :/)
Ohho það rýkur núna úr lampanum :S
Peran farin úr - ég tapaði stríðinu !
Skellti mér í sund áðan og guð hvað það er gott ! Kemst víst ekkert meira í sund næstu 10 dagana en í staðinn eru það pottaferðir og göngur "út að hliði" ; )
Mmmm kalkúnn eftir 5 daga og möndlugrautur sem er eitt það besta sem ég fæ ! Hlakka til allt árið að fá mér graut og svo er ég alltaf jafnsvekkt yfir því hversu miklu meira er búið til af sveskjumauki en graut (kannski ég bara búi til risaskammt af graut í ár :Þ).
Ég veit ekki af hverju ég er svona róleg í augnablikinu - samkvæmt minni skilgreiningu er ég varla búin að læra fyrir prófið á morgun :O Ég treysti algjörlega á að spurningarnar verði þær sömu og á síðustu 4 prófum og ef ekki - jahhh humm ætli mín bíði ekki eitt sætt FALL : / : |
Jæja hérna er smá til að koma öllum í gott skap - maður hefur séð íbúðaauglýsingar þar sem fólk hefur ekkert verið að hafa fyrir því að taka til heima hjá sér. Þetta er þó einum of mikið af því góða :Þ Þessi mynd fylgdi semsagt auglýsingu þar sem einhver vildi selja þvottagrindina sína :Þ
Íris sem er búin að borða allt jólakonfektið frá Rebekku og er einum of kokkí fyrir hugfræðiprófið (vill einhver kippa mér aftur niður í grámyglaða raunveruleikann)
martes, 19 de diciembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario