martes, 7 de noviembre de 2006

tókst að skila mínu skýrslulokauppkasti í dag :D

Þessa dagana þegar það er svona mikið að gera í skólanum, þá bara trúi ég varla hvað sumarið mitt var ótrúlegt ! Að hugsa til baka og vita að ég eyddi 1,5 mánuði bara í að gera það sem mér finnst skemmtilegast er alveg magnað :) Á morgun fæ ég niðurstöðuna úr STRONG prófinu. Ég veit svo sem ekki af hverju ég er svona spennt, það er ekki eins og þarna sé svarið - kannski bara smá vísbending í rétta átt :) Það hefur gripið mig mikil ferðalöngun síðustu dagana (samanber það sem ég skrifaði hérna ofar). Mig langar svo að heimsækja fjölskylduna mína í Venezuela, mig langar til Suð-Austur Asíu og til Japans. Mig langar líka til Grænlands og Tyrklands og ... og ... og ... Mig langar bara burt :) Ég hef komist að því síðustu daga að ég er ekki sú eina sem er komin með skólaleiða. Það er kannski ekki skrítið eftir 17 ára skólagöngu að maður þreytist. Ég held að það sé kominn tími til að endurnýja námsgleðina svo ég ætla að stefna að því af öllum krafti að klára í vor. Þá get ég gert eitthvað annað næsta árið þangað til við Orri flytjum eitthvert út. Hvað þetta annað verður fer eftir efni og aðstæðum en vonandi verður það eitthvað skemmtilegt :) Hmmm af hverju er ég svo að skrifa færslu kl 1:21 að nóttu - ég svaf til 12:30 í morgun : /

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Venjulegt fólk sefur ekki fram yfir hádegi á mánudegi!
En um daginn datt mér það í hug að fresta öllum minniháttar utanlandsferðum og safna bara fyrir ferð til ástralíu, nýja-sjálands, japans og tælands. Væri það ekki algjör draumur!?!

Anónimo dijo...

LOKSINS, ég held að ég sé búin að heimsækja þig þrisvar í dag og í hvert skipti sem ég ætla að fara commenta þá truflar mig einghver ! En oohhh hvað ég væri til í að kíkja til einhvers framandi lands, þar sem er sól og hiti kannski. Viltu vera mem ??? :o) En ég vona að ég heyri í þér á morgun, er gasalega spennt yfir Strong prófinu þínu :o) Láttu endilega heyra í þér skvís...

Anónimo dijo...

Ertu hætt að blogg ? Bara horfin af MSN líka ??? Hvar er Íris ?