Mér finnst eitthvað svo einstakleg gott en þó pirrandi við það að veturinn sé genginn í garð. Það virðist ekki breyta neinu hversu marga vetur ég lifi það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað það er dimmt, kalt, hvasst og hált á veturna ! En bjarta hliðin við þetta er að það verður svo kósý að vera inni undir teppi, kveikja á kertum og fá sér kakó :Þ
Í gær fögnuðu foreldrar mínir 18 ára brúðkaupsafmæli og 27 ára samveruafmæli :) Í því tilefni fórum við öll 7 á Austur-Indíafjelagið. Maturinn var stórgóður og það var svo gaman að fara út með ALLRI fjölskyldunni svona einu sinni :)
Hérna koma nokkrar myndir frá kvöldinu :)
Annars var ég að fá þær góðu fréttir áðan að ég slepp við lokapróf úr verklega hlutanum í Hugfræðinni :) Það áttu allir möguleika á að sleppa við það en skilyrðin voru að maður myndi mæta í ALLA tímana og skila ÖLLUM verkefnum. Ég missti af fyrsta tímanum þar sem ég var í Berlín og bjóst því við að þurfa að taka það - Í dag tilkynnti svo kennarinn að þeir sem hefðu bara misst af einum tíma mættu sleppa :D Alltaf mikil gleði að sleppa við próf !
Annars var ég að fá þær góðu fréttir áðan að ég slepp við lokapróf úr verklega hlutanum í Hugfræðinni :) Það áttu allir möguleika á að sleppa við það en skilyrðin voru að maður myndi mæta í ALLA tímana og skila ÖLLUM verkefnum. Ég missti af fyrsta tímanum þar sem ég var í Berlín og bjóst því við að þurfa að taka það - Í dag tilkynnti svo kennarinn að þeir sem hefðu bara misst af einum tíma mættu sleppa :D Alltaf mikil gleði að sleppa við próf !
Þessa dagana er alveg hrikalega mikið að gera og ég sé ekki fyrir endann á því - ætli maður slaki ekki bara næst á í jólafríinu :Þ Öll þessi verkefnavinna síðustu vikurnar hefur sett lesturinn algjörlega úr skorðum og núna skulda ég margra vikna lesefni : / Svo eru 2 próf hjá mér næstu vikuna og fyrirlestur á fimmtudaginn - Eftir það þarf ég að fara að klára skýrsluna fyrir félagslegu sálfræðina og þegar ég skila henni þá er bara kominn tími til að sökkva sér í prófalestur :O
Ætli maður líti þó ekki aðeins upp úr bókunum til að kíkja á vini sína, sérstaklega þá sem eiga afmæli á næstu vikum ;) Svo er villibráðarhlaðborð næsta föstudag hjá vinnunni hans Orra sem við ætlum í, ballettsýning hjá uppáhaldsfrænkunni, sörubakstur, hugsanleg próflestrarsumarbústaðarferð í byrjun des og svo auðvitað hið árlega aðventuboð mömmu :Þ
Ohhh já jólin eru að koma :D

4 comentarios:
Sætar fjölskyldumyndir !!!!
Úúúúúú veistu ég hafði það svo kósý á AK, fékk alvöru jólasnjó og alles, naut þess í botn að hjúfra mig undir teppi og slaka á :o) En gaman að heyra með prófið þitt, samgleðst þér gasalega, vildi að ég fengi líka að sleppa við eins og eitt lokapróf ! Heyri fljótlega í þér sæta :o)
Gott að þú skemmtir þér vel - það er alveg nauðsynlegt að leyfa sér að slaka aðeins á :)
En já svaka ánægð með að sleppa við þetta próf - þetta er þó bara úr verklega hlutanum og ég þarf samt að taka desemberprófið úr námskeiðinu
já, það er alveg ótrúlegt hvað þessir kennarar eru alltaf að klína þessum verkefnum á mann í lok annar!!
ég bara veit ekki hvort það verður tími fyrir afmæli! alltaf þurfa að vera próf og verkefnaskil þegar ég á afmæli... og þó, það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi ;)
Publicar un comentario