jueves, 9 de noviembre de 2006

Rebekka, ég er hér !

Á þriðjudaginn fékk ég úr STRONG prófinu mínu og samkvæmt því þá er líklegt að ég sé á vitlausri hillu í lífinu -Hér sjáiði topp 10 störfin mín samkvæmt prófinu
1. Heyrnarfræðingur 2. Geislafræðingur 3. Framkvæmdarstjóri félagsþjónustu 4. Næringarfræðingur 5. Skógræktarmaður 6. Hjúkrunarfræðingur 7. Sjúkraþjálfari 8. Sjóntækjafræðingur 9. Yfirmaður listi og/eða skrúðgarða 10. Eigandi lítils fyrirtækis Er ekki smá kaldhæðni að flest þessara starfa krefjast þess að maður klári af náttúrufræðibraut í framhaldsskóla - og hvað þau virðast vera fjarri því sem ég er að gera í dag ... Ég sé samt alveg af hverju þessi störf hafa verið valin. Maður gat ekki merkt neinsstaðar við að maður væri með gróðurofnæmi og væri þannig ekki líklegur til að verða skógræktarmaður eða yfirmaður listigarða. Skýrslan sem maður fær með niðurstöðunum er örugglega alveg 30 blaðsíður og ég á eftir að setjast niður og grúska og spá aðeins í þessu. ---------------------------- Mig langaði að benda á þessa síðu Kiva Á þessari síðu getur hver sem er styrkt fyrirtækjaeigendur í þróunarlöndunum með því að LÁNA þeim pening. Hlutfall þess penings sem er borgað til baka er 96% Ég er búin að skoða hana ansi vel og þetta er ekkert pýramídasvindl eða annars konar óþvætti, kíkið bara sjálf ! Koma svo - verum hluti af lausninni, ekki vandamálinu

2 comentarios:

Anónimo dijo...

3. Framkvæmdarstjóri félagsþjónustu
og 4. Næringarfræðingur, ég sé þig alveg fyrir mér í þessum störfum :o) Mér fyndist æði að þekkja einn næringarfræðing til að leita til svona þegar maður er að vesenast með matarræðið :o)

Anónimo dijo...

hahahaha já íris í skrúðgarði hahaha sé það avleg fyrir mér " já þetta fallega sjaldgæfa blóm aaaatsjúúú ,afsakið, sem þð sjáið hér heitir aaaaatttsjúúú , afsakið, Verasónata og kemur af gerðinni aaaaatttsjúúú sólblómum" hahahaha