miércoles, 15 de noviembre de 2006

Operation Damage Control

Það er enginn smá harka á manni í dag - Sólarhringurinn hjá mér var orðinn ansi öfugur, var vakandi til 3 og sofandi til hádegis og það var ekki alveg að virka :Þ Svo er ég að fara að halda fyrirlestur kl. 8:20 og fara í próf á morgun svo að það var augljóst að eitthvað varð að gerast ... Það sem mín gerði var bara að fara heim í föðurhúsin og ég svaf þar :Þ Ég svaf reyndar ekkert rosalega mikið þar sem ég var andvaka til 4 og var svo vakin svo kl. 7 en ég get þó loksins farið að sofa á skikkanlegum tíma í kvöld : ) Já það er greinilega ekki margt að blogga um þegar ég blogga um svefninn minn - Er búin að vera að læra fyrir prófið á morgun síðustu daga og það gengur ágætlega. Verð að viðurkenna að ég er óvenju óróleg fyrir þetta próf þar sem ég fékk svo lágt í síðasta hlutaprófi og mig langar svoooo mikið að fá GÓÐA einkunn í þessu prófi og þar sem ég misreiknaði mig svona svakalega á síðasta prófi þá hef ég smá áhyggjur ... Geisp Ég sit inn í andyri Odda og einhverra hluta vegna horfa allir á mig sem ganga fram hjá, ætli ég sé með risa svartan blett á nefinu?? eða bara svona svaka sæt í dag ;) Jæja 20 mínútur í tíma og svo er það bara læra læra læra og læra svo aðeins meira fram til 20. desember -kuldabolinn-

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Fólk er örugglega að dást að þér, þú hefur svo góða nærveru, og mikla útgeislun. Ég myndir líka dást að þér ef ég gengi fram hjá :o) Hlakka til að sjá á þér nebbann á morgun feiti dvergurinn minn ;o) Gangi þér vel í kynningunni og í prófinu á morgun, ég sendi þér góðar hugsanir ! *knús*

Anónimo dijo...

Það er ekki amalegt að fá svona hrós !

Takk sæta - við fáum okkur eitthvað svaka gott að borða á morgun :)

Anónimo dijo...

OOoo svo gaman að sjá myndir af ykkur öllum saman :)það er gott að það eru fleiri en ég sem eru komnir í smá jólaskap! :)Gangi þér vel i prófinu skvísa
kveðja Óla