sábado, 4 de noviembre de 2006

no-ki-a

Enn aftur komin helgi og enn einu sinni sit ég inni í matsal í vinnunni minni og blogga þegar ég á að vera að læra : )
Vikan er búin að vera bara nokkuð ljúf. Ég áttaði mig á því áðan að ég hef ekki tekið upp skólabók frá því á sunnudaginn síðasta en ég gleymdi nefnilega öllum bókunum mínum í vinnunni og hafði ekki einu sinni tekið eftir því :O :Þ Vikan er nefnilega öll búin að fara í undirbúning og framkvæmd tilraunarinnar og svo núna síðustu daga úrvinnslu gagnanna og skýrsluskrif - spennandi ekki satt :Þ Annars var þetta ansi skemmtilegt. Tilraunin sem við gerðum var að við sýndum fólki 10 orð sem við báðum það að leggja á minni. Því næst spiluðum við fyrir það tónlist í 3 mín og svo fengu þau 20 sek til að skrifa niður öll orðin sem það mundi. Loks átti það að ganga með blaðið út úr herberginu í annað herbergi 8 metra frá og skilja blaðið eftir þar í skál. Það sem við vorum að mæla var hvort að taktur tónlistinnar sem það hlustaði á hefði áhrif á gönguhraðann. Hóparnir voru tveir og hlustaði fólkið annað hvort á tónlist með hröðum eða hægum takti. Okkar tilgáta var sú að þeir sem að hlustuðu á hröðu tónlistina myndu ganga hraðar en niðurstaðan varð ÖFUG ! þeir sem hlustuðu á rólegu tónlistina gengu hraðar :Þ Ég vildi bara þakka þeim sem að nenntu að taka þátt í þessu fyrir mig. Þetta var svaka skemmtilegt og gaman að sjá hvað fólk hafði mikinn metnað fyrir minnisverkefninu (þó að það hafi að öllum líkindum verið ástæðan fyrir því að niðurstaðan okkar varð svona skrýtin :Þ) Einn tilraunabrandari svona í tilefni dagsins En nóg um tilraunir og skólann :Þ Í vikunni fékk ég líka að sjá gullfallega fyrirburaprinsessu. Ég hef aldrei áður komið upp á vökudeild og það var ótrúlegt að sjá hversu mikið af tækjum og tólum fylgja þessum börnum. Það var líka ótrúlegt að sjá hversu lítil þau eru en þetta eru algjörar hetjur og með hjálp tækninnar þá verður allt í lagi með þau :)
Ég gerði áhlaup á jólagjafainnkaupalistann í gær og nú er lítið eftir að gera nema kaupa gjöfina hennar Eydísar, bæta aðeins við gjafirnar handa ömmum, öfum og foreldrum og svo bara baka :D Þetta ætla ég að klára í nóvember svo desember verði jólagjafainnkaupafrír. Ég fékk nefnilega að heyra það að ég hefði verið nánast óbærileg að búa með og ansi erfið í desember í fyrra :Þ Mamma og Orri voru að kvarta sko :Þ Ég meina kommon það er ekki auðvelt að vera að læra fyrir próf, vinna, reyna að hafa kósý aðventu, þurfa að kaupa gjafir og svo líka pakka og vera reddí til að fara út úr bænum um leið og maður gengur út úr síðasta prófinu 20. des. Jamm þannig núna er planið að dreifa þessu og vera ekki með neinar monníáhyggjur í des. Slaka svo bara á og borða sörur yfir skólabókunum á meðan ég læri.
En jæja þetta blogg er að ná metlengd ... það gerist alltaf þegar maður skrifar blogg í pörtum á milli þess sem maður vinnur og svona :Þ Manni dettur alltaf eitthvað nýtt í hug til að bæta við þegar maður kemur aftur að tölvunni :Þ
blessbless

1 comentario:

Anónimo dijo...

Merkileg niðurstaða... mér fannst ég reyndar labba frekar hægt (hlustaði á hraða tónlist held ég), en ég var líka svo upptekin af minnisprófinu, var mikið að spá í hvaða orð það voru sem ég mundi ekki ;) Ég reyndi líka eftir fremsta megni að útiloka tónlistina og eftir prófið mundi ég ómögulega hvað ég hafði verið að hlusta á.