martes, 21 de noviembre de 2006

nöldurpirringsblogg - ekki fyrir fólk í góðu skapi

Vægast sagt þá tók ég þessari einkunn í gær ekki vel og ég sé það núna að eftir mig liggur slóð eyðileggingar frá því ég opnaði þetta pdfskjal í gær sem innihélt einkunnirnar. Ég held ég hafi aldrei orðið jafn miður mín yfir einkunn sem er bara alveg allt í lagi. En er ekki málið að standa upp og halda áfram, ekkert annað hægt að gera hvort sem er. Ég fór til læknis í gær út af kinnholubólgu eða hvað sem það er. Hann lét mér líða eins og ég væri bara þarna af því mig langaði svo til að vera veik, hann passaði sig á að snerta mig aldrei, spurði mig ekki að neinu og horfði bara á mig eins og ég væri eitthvað heimsk. Alveg ótrúlegt, sagði að kinnholubólgan væri líklegast bara spennuhöfuðverkur ! en samþykkti þó með semningi að senda mig í röntgen og blóðprufu. Ég lagði nafnið hans á minnið og ætla að passa að ég fái ekki aftur tíma hjá honum - Ég hef btw aldrei heyrt um spennuhöfuðverk sem að varir í 2 mánuði og nær yfir allt andlitið ! ohh grr. Svo langar mig ekkert að fara í þessa blóðprufu og röntgen því að þá þarf ég að díla meira við þennan mann. Já greinilega mikið um pirring og þá á maður kannski ekkert að vera að blogga : / Ég er bara mest pirruð yfir því að vera búin að missa þennan góða kraft sem ég hef haft síðustu vikurnar og mér finnst ég vera dottin lengra niður en ég var áður. Mig langar bara að þessari önn ljúki sem fyrst áður en mér tekst að fella sjálfa mig algjörlega Íris öfugsnúna

6 comentarios:

Anónimo dijo...

Skamm skamm, maður á ekki að láta einkannir sem maður er ekki sáttur við og lækna-asna skemma fyrir manni. Það er svo miklu mikilvægara allt sem þú ert að gera, mér finnst einkunnin þín fín, eiginlega dauðöfunda þig af henni, en það sem er jákvætt með vonbrigðin þín er að þú hefur metnað til að reyna gera betur og það er alltaf jákvætt !!! Þannig að ég segi við þig, þú stendur þig eins og hetja. Stutt í jólin og smá frí, þannig að nú er bara að hugsa jákvætt í mánuð í viðbót og láta þetta allt saman ekki vera berja á manni og draga úr manni kraftinn ! *knús*

Anónimo dijo...

... já svo eitt annað, besta leiðin til að koma frá sér pirringi er að blogga um það, manni líður alltaf smá betur þegar maður hefur komið pirringnum frá sér, ég allavega nota það óspart eins og þú veist ;o)

Íris dijo...

Ohh þetta var akkúrat það sem ég þurfti smá spark í rassinn !

Ég ætla að drífa mig út í smá göngutúr núna og setjast svo niður og massa þennan síðasta kafla fyrir prófið á morgun :*

Endilega láttu mig vita ef þú ert laus í kakóbolla í vikunni - veitir ekki af því að fá kakó í kroppinn í svona snjó :)

Anónimo dijo...

Þessi læknir hefur greinilega misst af þeim tíma í læknisnáminu þegar kennd voru samskipti við sjúklinga! Og einkunin er fín, einbeitt þér bara að því að klára, jólin eru ekki nema mánuð og 4 daga í burtu og jóla snjór úti til að létta manni lundina :)

Anónimo dijo...

Íris til hamingju með áttuna þína -það er dúndur einkunn! Þú varst ánægð með þig og námið þitt um daginn - og af hverju? Jú þú fannst að þetta var ekki svo flókið og að þú ræður vel við þetta - og það kom í ljós í prófinu - svo þú hefur enga ástæðu til annars en að vera ánægð og stolt af sjálfri þér áfram ;-) Sjáumst í "sörum" um helgina

Anónimo dijo...

Þetta fyrir ofan var semsagt frá mömmu :-)
(og hertu upp hugann krullustelpa)