viernes, 17 de noviembre de 2006

Góðir dagar

Jebb þetta eru búnir að vera góðir dagar :) Kynningin í morgun gekk vel þó að mér hefði tekist að sofa yfir mig og mæta of seint. Það voru sem betur fer 10 aðrir hópar að kynna svo þetta var ekkert mál. Stressaðist samt óvænt upp við að tala fyrir framan hópinn og mér fannst ég ekki koma þessu alveg nógu vel frá mér. Svo var líka hið mikilvæga SPSS próf í dag og ég svo sver það ef ég fæ ekki 10 þá var þetta próf gallað. Ég er samt með smáhnút því að voru 1-2 spurningar sem ég var ekki alveg 110% á og þar sem prófið innihélt svo fáar spurningar þá giltu þessar tvær spurningar 15% hvor :/ Svo ef ég klúðraði einni eða báðum þá fæ ég 8,5 eða 7 : ( Svo bara krossa putta og vona það besta :) Ég og Rebekka kíktum út í kvöld. Skelltum okkur á Á næstu grösum og borðuðum, fórum svo á Svarta Kaffið og ræddum um allt sem er að menntakerfinu - miklar pælingar í gangi skal ég segja :) Annað ómerkilegara í fréttum er að ég ætla í permó á mánudaginn. Fór þarna fyrir ári síðan en var með svo sítt hár þá og lét setja í mig of stórar rúllur þá var ég aldrei ánægð með það, það var ekki fyrr en ég klippti það styttra að allt í einu birtust krullur .... oooog mig langar aftur í krullur :Þ Hmm meira, ég og Orri ætlum á tónleika Sinfóníunnar, rokkhljómsveitar og fjölda söngvara 1. des. Það á að flytja öll bestu lög John Lennons og ég held að þetta verði magnað ! Gaman líka að fara einu sinni svona út - það er ekki oft sem maður skellir sér á Sinfóníuhljómsveitina :) En skamm ég, ég veit ekki af hverju ég er enn vakandi. Ég var dauðþreytt í allan dag og svo þegar ég hafði hugsað mér að fara að sofa var ég bara svona glaðvakandi : /Ætla þó að reyna að vakna snemma á morgun svona til að fara ekki í þetta leiðinlega dagsvefnmynstur.

1 comentario:

Anónimo dijo...

Takk fyrir spjallið og dinnerinn sæta :o) Vona að þú hafir vaknað vel í morgun :o) Hafðu það gott í dag *knús*