Ég þakka fyrir það að hafa sofið í vinnunni í nótt því ég hefði aldrei komist í vinnuna með allt dótið mitt því bíllinn minn fer ekki eitt né neitt á sumardekkjunum :Þ
Voðalega er þessi snjór kósý - ég er reyndar ekki enn búin að fara út - en útum gluggann þá fær hann mann bara til að brosa :)
Eftir síðasta póst um hvað heimurinn er ljótur væri þá ekki skemmtilegara að spá í því góða sem er að gerast.
Ég minntist um daginn á þessa síðu og finnst ástæða til að gera það aftur Kiva
Hvernig væri að gera góðverk fyrir jólin og hjálpa fyrirtækjaeiganda í þróunarlandi að bæta eða setja af stað fyrirtæki ?? 25$ er ekki nema rétt rúmar 1700 krónur og þetta er lán ekki gjöf!
Dagur rauða nefsins er svo framundan. Nefin eru seld í Bónus, 10-11, Essostöðvunum og fleiri stöðum, Kosta ekki nema 500 kr og ágóðinn rennur til verkefna UNICEF - Hver vill ekki gleðja börn um jólin??
Af öðru góðu og sætu þá gaf afskapleg sæt gömul kona mér fingurkoss um daginn af því ég stoppaði fyrir henni og hleypti henni og vinkonu hennar yfir götuna :) Bílarnir brunuðu bara framhjá þeim og enginn stoppaði svo þær gætu komist yfir - skamm skamm
Ég virðist loksins vera búin að ákveða og sætta mig við það að vera bara í sálfræðinni :Þ Og þá strax varð þetta líka miklu skemmtilegara. Það er ekki hægt að vera í námi sem að er svona mikil vinna og stress án þess að gera það af hug og hjarta. Ég er búin að vera á Uglunni eins og crazy síðustu daga að vonast eftir einkunninni úr SPSSprófinu þó að ég viti að það kemur í fyrsta lagi á morgun ef ekki seinna. Maður er bara alltaf svo vongóður :Þ
-----------------------------
Smá ljótt:
Hvað er málið með OJ Simpson og If I did it gróðabraskið sem er í gangi !
Þvílíkt óforskammað og alveg ótrúlegt að ætla sér að fá pening út úr þessu máli hvort sem hann myrti þau eða ekki - Þetta er bara svo siðblint og svo RANGT !
Mér finnst þetta nú bara hljóma eins og játning - hann segir meira segja hversu mikið þeim hefði blætt EF hann hefði myrt þau !!??!!
Only in America !
Farin að lesa um single concept-learning mechanism - Hugfræðipróf á miðvikudaginn og stefnan er á 8+ :)
ps. það gengur einhver vibbavírus á msn þessa dagana. Ekki opna neina linka sem heita mypics eitthvað !
Farin að lesa um single concept-learning mechanism - Hugfræðipróf á miðvikudaginn og stefnan er á 8+ :)
ps. það gengur einhver vibbavírus á msn þessa dagana. Ekki opna neina linka sem heita mypics eitthvað !

5 comentarios:
alveg yndislegur þessi snjór!
en já, hvað er málið með OJ??? maður fer að hallast að því að hann sé morðinginn, enda var hann fundinn sekur í einkamáli fjölskyldunnar. Siðblindt ógeð!
Já var fundinn sekur og hefur ekki enn borgað fjölskyldunni "sektina" sem hann fékk ...
Mér finnst snjórinn vera voða notalegur, loksins smá "alvöru" vetur á Íslandi :o) Ég vona að læri, læri hafi gengið vel hjá þér yfir helgina, ég er búin að vera lesa undir próf, og ég nenni valla meir ;o) En það þýðir víst ekkert að hugsa svona, maður verður bara að reyna vera jákvæður í baráttunni! Annars vona ég að þú eigir góðan dag sæta *knús*
Svafstu í vinnunni ?!!??! Var ófært heim ??
En mér finnst skuggamyndin æði - eru þetta ekki við ?
Gangi þér vel í prófinu ;)
hehe nei ég svaf í vinnunni af því ég var að passa húsið yfir nóttina - það var bara heppilegt að ég hafi verið þarna því ég hefði þurft að moka bílinn minn út ef ég hefði verið heima :Þ
En jú þetta erum við í göngutúr 21. des í fyrra :)
Publicar un comentario