Eftir niðursveiflu síðustu daga var bara hægt að fara í eina átt - Upp :)
Rebekka fékk mig til að vakna kl. 7:30 ! í morgun og við vorum mættar á Hlöðuna að lesa við opnun (í fyrsta skipti sem ég mæti svona snemma í vetur!). Svo var maður bara duglegur að lesa til 17 : )
Ég er varla að trúa því að það sé að koma desember, alltaf þegar ég skrifa dagsetninguna á glósurnar mínar þá skrifa ég alltaf október - er engann veginn að átta mig á því að einu árinu enn er að ljúka og bráðum verða jól og áramót og svo verður komið árið 2007 ! 2007 hljómar eins og fjarlæg framtíð - eins og eitthvað sem gerist í vísindaskáldsögu *hugs*
Er búin að vera að dunda mér við eitt sem mér fannst alltaf ómissandi partur af því að jólin væru að koma - skoða Bókatíðindin : ) Man að ég merkti alltaf við allar bækurnar sem ég vildi fá og svo fékk ég alltaf haug af bókum í jólagjöf :Þ
Bara svo að það sé alveg kristaltært þá vil ég ekki þessa bók í jólagjöf
Í þetta skiptið var ég að merkja við allar bækurnar sem ég ætla að lesa á næsta ári og svo kannski líka upp í bústað um jólin :Þ
Datt niður á alveg ótrúlega hljómsveit um daginn Orange Blossom - ég var algjörlega dáleidd þegar ég hlustaði á þetta fyrst og hef svo ekki hlustað á annað alla vikuna
Jæja 15 mín í One Tree Hill og svo er það bara bælið - er ansi þreytt eftir að hafa vaknað svona snemma í morgun og planið er að fara snemma á fætur á morgun líka til að LESA

2 comentarios:
Takk fyrir góðan maraþon lesdag ;o) Ég var nokkuð ánægð með árangurinn ! En ég vona að þér gangi jafn vel með lesturinn í dag og þú eigir góðan dag, heyrumst fljótlega sæta *knús*
Ok, þetta er heimsókn nr. 5 í dag...mig vantar svo blogg frá þér, er að mygla hérna í mannréttindaákvæðunum, o dear ! Þú kannski átt smá tíma aflögu í næstu viku, í smá gangitúr eða kakósopa, það virðist ekkert vera neitt að hlýna :o) en vona að þú hafir haft það gott í dag sæta !
Publicar un comentario