Jæja þar sem ég er með ritstíflu á alvarlegu stigi er þá ekki bara best að blogga í staðinn fyrir að reyna að skrifa inngang í skýrsluna mína :Þ
Sörumaraþonbaksturinn gekk vel - Ég, mamma, Kristín og María bökuðum saman 13 uppskriftir af sörum og allt í allt hafa þetta verið yfir 300 sörur : O :D


Ég hlakka svo til þess að eiga desember á nprófa og geta farið að njóta þess að undirbúa jólin. Í ár er hver stund sem fer í jólaundirbúning stolin frá tímanum sem ætti að fara í bókalestur :/ semsagt eitt alls herjar jólasamviskubit ! - kannski á næsta ári :)
Á dagskránni næstu vikuna er mest bara lestur og Hlöðuhangs en maður verður nú að gera eitthvað skemmtilegt líka svo við kallinn ætlum á date á föstudaginn: Caruso og svo Sinfónían.
Á laugardaginn er svo sæta prinsessufrænkan mín að taka þátt í ballettsýningu og auðvitað mætir maður að horfa á hana :)
Hmm ég er greinilega líka með bloggritstíflu því ég man ekkert af súpermerkilegu hlutunum sem ég ætlaði að segja - Jæja fyrst mér dettur ekkert í hug til að skrifa og ég hugsa ekki um neitt annað en jólin þá koma hér myndir frá jólunum í fyrra :D
Það er ekkert lítið mál að flytja jólin upp í bústað :Þ








3 comentarios:
Æðislegar myndir :o) Svo kósý hjá ykkur í bústaðnum yfir jólin. Mér finnst þetta skemmtileg hefð hjá ykkur :o) Og enn og aftur takk takk fyrir Sörurnar. Ég vona að skýrsluritunin gangi vel hjá þér. Við sjáumst svo vonandi fljótlega *knús* Bekka
Skemmtilegar myndir, alveg ekta jóla ;) vona bara að við fáum að sjá svona snjó hérna um jólin!
Skemmtilegar myndir, alveg ekta jóla ;) vona bara að við fáum að sjá svona snjó hérna um jólin!
Publicar un comentario