Velkomin til Bandaríkjanna - Vinsamlegast skiljið allar kröfur um mannréttindi eftir við landamærin !
Smá forsaga: Nemandi við UCLA sem er af írönskum uppruna sem gat ekki framvísað skilríkjum þegar að háskólalögreglan gerði random check á bókasafninu. Hann var semsagt að labba ÚTAF bókasafninu þegar háskólalöggan stoppar hann með því að grípa í handlegginn á honum. Hann er ekki með nemendaskilríkin sín og segir við lögguna "Get off me" og þá er hann teisaður ! Eftir það heyrist hann öskra margoft "I'm not fighting you" og "I said I would leave".
Þrátt fyrir þetta er hann handjárnaður og teisaður aftur og aftur af því hann stendur ekki upp. Hvert skipti varir í svona 3-5 sekúndur og það dugar til að maður geti ekki hreyft sig frá nokkrum sekúndum upp í allt upp í 15 mínútur - Hann ógnar lögreglunni aldrei og er ekki boðin nein önnur leið til að sanna að hann sé nemandi við skólann.
Það er hellingur af fólki þarna í kring og löggan hótar bara að teisa það líka þegar það biður um nöfnin á lögregluþjónunum og "badge number"!
Afsökun löggunnar: þeir gátu ekki vitað hvort að hann væri nemandi og hvort hann væri óvopnaður ! Guð minn almáttugur á að gera ráð fyrir að hver einasta manneskja á háskólasvæðinu sem gleymir skilríkjunum sínum heima hjá sér gæti verið vopnuð og hættuleg og það sé þá afsökun fyrir að ráðast á hann -
Myndband af atburðinum
Myndbandsfrétt um málið
Dagblaðafrétt
Mér er bókstaflega óglatt !
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Klárlega gróft brot gagnvart stjórnarksrárbundnum rétti mannsins, og öllum mannréttindasáttmálum í heiminum, kolólögleg handtaka og svo framvegis. Manni finnst bara ótrúlegt að svona sé farið með almenna borgara. Mjög sorglegt að svona lagað geti gerst ! Ég er bara alveg dofin yfir þessu...
Ógeðslegt!
Bæði þetta atvik og svo líka að það sýnir hvað bandaríkjamenn virðast almennt vera paranoid, sjá óvin í hverju horni og geta ekki sýnt neitt traust til fólks. Algjört lögregluríki! Það er bara að vona að eitthvað breytist eftir næstu forseta kosningar.
OMG!! Vona innilega að þessum löggum verði vikið úr starfi!
-Bandaríska ríkisstjórnin er bara að koma verr og verr út á hverjum degi. Greinilega kominn tími á smá/miklar breytingar
Publicar un comentario