lunes, 20 de noviembre de 2006

algjör bömmer

Ég held ég hafi aldrei orðið fyrir jafnmiklum vonbrigðum sem einkunn sem er þó allt í lagi. Ég fékk BARA 8 á SPSS prófinu og ég var svo svekkt þegar ég sá það að mig langaði bara að fara að gráta. Yfir 1/4 fékk 10 á prófinu og svona helmingur var með 8+ svo ég ÁTTI að ná 10 ... Ég var nefnilega efins á prófinu yfir 2 spurningum sem að voru mögulega svolítið verið að afvegaleiða mann - en ég hugsaði að það væri örugglega verið að spurja um það sem að virtist vera augljóslega spurningin en ekki eitthvað trick : / Ég þoli ekki trick spurningar, ég kunni allt námsefnið utan að og það að maður fatti ekki slaufur og þrefaldar neitanir sem kennararnir leggja fyrir mann þýðir ekki að maður hafi minni skilning á efninu. Ég er hundfúl, svekkt og þarf að rífa mig upp aftur til að læra fyrir næsta próf sem er á miðvikudaginn :( Fæ vonandi að sjá prófið, langar að vita hvað það var sem ég klúðraði.

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég hata trick spruningar, þær eru bara til þess að gerðar að fella klára fólkið! Vonandi færðu að sjá prófið, hundfúlt að vita ekki almennilega hvað maður gerði vitlaust. Og gangi þér vel í næsta prófi :)

Anónimo dijo...

æ, en leiðinlegt sæta. Ég er mikið á móti prófum yfir höfuð, segja aldrei hvað maður kann og hvað maður kann ekki ! En ég vona innilega að það gangi betur hjá þér á miðvikudaginn !