miércoles, 1 de noviembre de 2006

54 dagar til jóla

Ég var búin að gera ýmis plön fyrir daginn í dag en þegar á hólminn er komið þá langar mig bara að gera ekki neitt. Ég ætlaði nefnilega að verðlauna sjálfa mig fyrir að vera svona dugleg í léttingunni með því að fara á Grænan kost og fá mér gott að borða og fara svo á bókasafnið og lesa Lifandi vísindi :Þ Já já ég veit ég er svaka skrítin, hver verðlaunar sjálfan sig með því að lesa vísindablöð og borða úber hollan mat :Þ Þessa dagana er ég líka á fullu að vinna í gagnasöfnun fyrir tilraunina í Félagssálfræðinni. Mig vantar nokkra í viðbót til að fylla upp í úrtakið mitt því það voru nokkrir sem að gátu ekki komið sem ég hafði gert ráð fyrir :/ vona að það reddist bara því mig langar innilega mikið að ná að klára gagnsöfnunina í kvöld svo að það sé hægt að byrja á skýrslunni á fimmtudaginn .... Erum að gera smá easypeasy minnistilraun og þetta tekur svona rétt rúmlega 5 mínútur. Í dag er náttúrulega payday, guði sé lof því ég er búin að lifa á minna mál kexi í næstum viku : / Ótrúlegt hvað þetta kex er seðjandi ! en að borða lítið annað en það í viku er hálfsúrt. Ég fór því áðan og keypti mér pastabakka svona í tilefni af því að eiga smá monní en ojj hann var svo vondur : / Á morgun ætla ég svoooo að fara í Hagkaup og kaupa hollan góðan mat, ávexti og fleira djúsí : ) Stórfrétt dagsins er svo að vinkona mín er að eignast barn núna as we speak svo ég ætla að vera fyrst til að óska þeim TIL HAMINGJU MEÐ SKVÍSUNA : ) Jæja got2go að slæpast

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég mæti í kvöld skvís í minnistilraunina :o) Hlakka til að sjá þig og mér finnst verðlaunin þín alveg geggjuð, ég væri alveg til í að verðlauna mig svona ! Manni líður líka svo miklu betur af einhverjum svona verðlauninum :o)

Anónimo dijo...

Ég verðlauna mig yfirleitt með american style..... þá kemur jafnvel fyrir að ég verðlauna hollustuátak með því að leyfa mér óhollustu... það er ekki síður skrítið en örugglega ekki óalgengt.