domingo, 1 de octubre de 2006

www.pandora.com

Hvaða hvaða ég bloggaði áðan en það kom ekki inn og færslan er bara horfin .... hef aldrei áður lent í því með blogspot ... en jæja Mér tókst hið ómögulega, ég náði að vinna upp alveg heljarinnar ósköp af lesefni þessa vikuna og það eina sem ég skulda núna eru 6 greinar í Félagslegu sálfræðinni ! Þetta jaðrar við að vera kraftaverk því ég bjóst varla við því að ná að lesa þetta allt saman - en viti menn þetta hafðist :Þ Bootcamp á morgun, hlakka mikið til ! Ég var með svo miklar strengi á föstudaginn að ég skrópaði í tíma, ég var bókstaflega að drepast í öllum skrokknum. Ég er líka nokkuð viss um að hörku yogatíminn sem ég tók á fimmtudeginum hafi ekki verið til bóta því eftir hann gat ég varla hreyft á mér efri hlutann því við eyddum svo miklum tíma í ýmis konar armbeygjustellingum : Þ Jæja ætli það sé ekki best að fara að skella sér í bælið ... maður er svona að reyna að venja sig á að vakna amk ekki seinna en kl. 9 :Þ

1 comentario:

Anónimo dijo...

Til hamingju með upplesturinn :o) og sjáumst á eftir :o)