domingo, 22 de octubre de 2006

sunnudagsblogg

Jæja þá er maður mættur í vinnuna - alltaf jafnkósý að vera hér :) Planið er að læra vel í hugfræðinni í dag þar sem það er víst próf á miðvikudaginn og ég væri alveg til í að standa mig betur núna heldur en síðast þegar ég fékk bara 6 : / Mikið er maður heppin að hafa gott fólk í kringum sig : ) Þessa dagana er það hún Maggý amma hans Orra sem fær risaknús og koss fyrir að vera okkur svo góð :) Haldiði að hún hafi ekki bara lánað okkur bílinn sinn og þá get ég farið í það á morgun að redda okkar bíl svo vonandi verður hann kominn í lag í vikunni :Þ Gærdagurinn var bara kósý frá því ég vaknaði þangað til ég fór að sofa. Ég kúrði um morguninn og horfði á nýjustu þættina af One Tree Hill og ANTM. Er einhver hérna að horfa á nýjustu seríuna af OTH?? ó mæ þvílíka sápuóperudramað ! Svo fórum við Orri í brunch hjá Maggý og fengum svaka gott að borða eins og ALLTAF :Þ Svo var bara farið í göngutúr í góða veðrinu, ís í Perlunni og dáðst að sólarlaginu *ógó rómó ekki satt ;)* Loks var farið heim og eldaður dýrindis fiskur og horft á myndina Match Point. Ég veit samt ekki hvað ég var að spá að halda mér vakandi svona lengi, fór að sofa 1:30 í nótt og ég var svo þreytt þegar ég þurfti að vakna í vinnuna í morgun : / Maður lærir aldrei af reynslunni ! Jæja ætla að fá mér hádegismat - chao

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Kannski við ættum að byrja á því aftur að horfa á þætti saman, skipta út OC fyrir OTH? ÉG man bara hvernig seinasta sería endaði og get ekki beðið eftir því að sjá framhaldið!

Anónimo dijo...

4 sería af OC byrjar núna 2. nóv ef ég man rétt ... við verðum bara að hafa OC kvöld og horfa á þetta saman :)
OTH er samt algjör snilld, þvílíka sápan og dramað :Þ