miércoles, 11 de octubre de 2006

smá ÚTrás

Svona verð ég eftir svona 2 tíma
Ég fer bráðum að tæta af mér hárið ! Ég er að reyna að læra fyrir próf sem að gengur alveg ágætlega nema ég er alltaf stopp út af því að SPSS forritið gerir ekki það sem það á að gera, svo þarf ég að eyða hálftíma í að finna stillinguna sem er ekki rétt, kemst tvö skref áfram og svo er það eitthvað nýtt : / Ég er svona |-----| langt frá því að gefa bara skít í þetta allt saman og fara að gera eitthvað skemmtilegt ! Var búin að plana bíóferð í kvöld með Andra bjútí en í staðinn er ég föst á Hlöðunni fram til lokunnar *grrrr* Ég veit ekki hvað er að fólki sem leggur á sig sálfræðinám við HÍ, það virðast allir vera sammála um það að þetta sé EKKI skemmtilegt ! Hvers vegna er þetta ekki skemmtilegt, efnið er áhugavert og af nógu að taka en svo er maður endalaust fastur í einhverjum tölfræðiútreikningum og túlkunum ... : / Ég ætla að klára þetta blessaða BA mitt næsta vor og svo aldrei aftur líta í tölfræðibókina mína ! Bless í bili

1 comentario:

Anónimo dijo...

híhí andri bjútí, ef þú hittir hann á morgun máttu kyssa hann á kinnina frá mér :) ég sé hann væntanlega ekki fyrr en á lau (bissí bissí bissí). En já, ég er sammála þér (þó ég hafi enga persónuleg reynslu) að það er alveg hrikalegt hvað sálfræðin er drepin niður í Hí, eins og þetta er allt saman áhugavert!!! Það þarf að fara að virkja nemendamótmæli hérna til að gera e-ð í svona málum.