Jæja þá er ég búin að fara í STRONG og nú er bara að bíða í 2 vikur og þá kemur í ljós hvort að ég finni svarið :Þ
Ég veit bara ekki hvað er búið að vera í gangi hjá mér frá því að skólinn byrjaði. Ég er bara alls ekki að finna mig þarna og líður ekkert vel en finnst þó að ég verði að klára því ef að ég þrauka í gegnum þetta þá verð ég komin með BA próf í vor ... Úff en mig langar mest bara að hætta þessu öllu saman ~ hella mér út í jóga alveg af fullum krafti, læra svo jógakennarann og eignast mitt eigið stúdíó :Þ En mig langar líka í heilsusálfræðina og þá verð ég að klára þennan blessaða BA + að ég á örugglega alltaf eftir að sjá eftir því ef að ég klára ekki því 75 einingar í HÍ er ekkert en 90 einingar er próf svo ætli ég verði ekki bara að finna kraftinn aftur og reyna að standa mig betur.
Jæja best að fara að gera eitthvað af viti
-ÍÓ út-
martes, 24 de octubre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

4 comentarios:
Það er ekki svo langt framá vor! Bara alveg hreint ótrúlega stutt!! Bara skipta þessum mánuðum þangað til með eitthvað til aðð hlakka til með reglulegu millibili. Núna eru t.d. aðeins 5 eða 6 vikur í afmælið mitt :) eftir það bara 3 vikur til jóla, svo kemur örugglega eitthvað skemmilegt milli nýárs og páska. Svo eru bara páskar og árið búið! En mér lýst alveg rosa vel á jógaplanið :)
hhehe já á milli nýárs og páska er afmælið mitt :Þ
jú ætli maður verði ekki bara að bíta á jaxlinn og þjösnast áfram í gegnum þetta :)
Alveg rétt, það er svo stutt eftir og tíminn líður svo hratt að maður veit valla af þegar hann er floginn fram úr manni :o) En mér finnst Jógaplönin geggjuð hjá þér, þú ert strax búin að eignast fastakúnnann þinn ;o) hehehe...sé þig vonandi á morgun sæta mín :o)
já ég verð náttla líka fastakúnni, sérstaklega ef maður fær góðan afslátt ;)
Publicar un comentario