domingo, 8 de octubre de 2006

Dashboard

Jæja enn ein helgin að klárast og enn ein vikan að byrja ! Tíminn flýgur frá manni, ekki satt?? Helgin er búin að vera frekar sweet og róleg. Aldrei þessu vant hef ég bara sofið til hádegis og í nótt held ég að ég hafi sofið í 11 tíma :O þvílíka letin. En annars er ég og pabbi (samt aðallega pabbi) búin að vera að flísaleggja í eldhúsinu. Skelltum þessum fínu, hvítu flísum á milli skápanna og borðplötunnar og þetta gerir alveg heilan helling fyrir litla, kramda eldhúsið mitt :Þ Ég á ekki skilið hrós fyrir dugnað síðustu vikuna en ég var þó ansi dugleg í dag og fór í smá búðarrölt, fór í Bónus, fann jólagjöf handa Maríu (samt ekki í Bónus :Þ) og nú er ég búin að kaupa 2 jólagjafir :D Fór svo í IKEA til að reyna að redda smá fyrir jólagjafirnar handa eldra pakkinu en ég verð víst bara að mæta í Nýju Ikea þegar hún opnar því það var ekkert til sem að ég þurfti. Jæja geisp geisp, eitthvað er þetta gráa veður að gera mig syfjaða. Ætla að kveikja á nokkrum kertum og hafa svolítið kósý :D Chao

2 comentarios:

Anónimo dijo...

jamen! jólagjafir í byrjun október! það kalla ég nú mega dugnað. annars held ég að íslendingar eigi örugglega eftir að fara allir saman í hópferð í nýja Ikea næstu helgi, hehe. Ég veit að ég verð þar ;)

Anónimo dijo...

Ég alveg dáist að þér með jólagjafirnar. En þér hefur tekist að hafa áhrif á mig, því ég er búin að gera gjafalistann, nú þarf bara að fylla inn í hann og fara að spreða peningum ;o) Heyrumst fljótlega sæta !