domingo, 3 de septiembre de 2006

varla eitt né neitt

Úff þetta hlýtur að vera grín - ég er með strengi eftir að hafa verið að mála í gær ! Ég var að hjálpa mömmu og pabba að mála húsið og var meirihlutann af tímanum uppi í tröppum en málningardollan var á jörðinni, svo ég þurfti alltaf að stíga með annan fótinn niður á jörðina, með hinn enn í tröppunni, beygja mig niður og ná í meiri málningu og spyrna svo upp aftur ... jebb og ég er með strengi ! Hvernig verð ég þá eiginlega eftir bootcamp ! Skólinn byrjar á morgun og ég er búin að eyða helginni í að undirbúa það, kaupa í matinn og svona svo að ég þurfi ekki að vera að stússast í vikunni. Geggjað að eiga fríhelgi :D :Þ Hef ekki mikið að segja í dag svo bara ADIOS

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Mér finnst síðustu daga ég fái strengi eftir allt, nema kannski að stunda reiðvöllinn,hehehe....

En við verðum góðar eftir Bootcampið, þá verða vonandi dagar strengjanna taldir ;o)

Gangi þér svo vel í skólanum á morgun skvís.

Anónimo dijo...

hola,

hvað segiru Íris mín, var ekki skráð sig í einhvern spænskukúrs á þessari önn??

Anónimo dijo...

ég er reyndar ekki enn búin að skrá mig en planið var að gera það á morgun :Þ Ætla að fara í Kvikmyndir Spánar, vonandi ert þú þar líka ;)