Ohhh #$%&$&%!"#$&&%%$# FUCK hvernig datt mér í hug að fara úr kósíheitunum í spænskunni aftur í helvítis stressruglið í sálfræðinni ... Ég er búin að vera í skólanum í 2 DAGA og ég er strax viss um að heimurinn sé að farast HELVÍTIS
Jæja fyrst ég er búin að fá útrás þá verð ég víst að segja að ég er samt nokkuð viss um að þetta reddist allt ... þetta reddast alla veganna allt eftir daginn í dag þar sem ég ætla ekki að gera BAUN Í BALA, ég fer í verkfall, ætla að kaupa mér haug af nammi, kúra mig undir teppi, lúlla smá og horfa á That '70s show á meðan þvottavélin mín þvær lakið mitt !
Góða nótt
martes, 5 de septiembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Flott hjá þér, That 70's show er sko rétta leiðin til að takast á við vandamálin ;) En ég vona að allt reddist, gerir það það ekki yfirleitt?
Nei Íris, ég trúi þér ekki, NAMMI ??????? Anyways, dagur þrjú kominn og ekkert gos, enda búin að vera með dúndrandi hausverk í tvo daga *roðn* Er orðin smá spennt fyrir morgundaginn :o)En auðvitað reddast allt, maður þarf bara að vinna í þessu, vinnan er oftast þess virði í lokinn :o)
Hahah Íris þú ert yndisleg ;) Var að lesa allar síðustu færslur núna - er ákaflega léleg að vera á netinu!
Og já ég kannast sko við miðatýnslur;) Þú ert alltaf velkomin til Sverige :) Og vertu dugleg að læra ;)
Publicar un comentario