jueves, 14 de septiembre de 2006

rrip

Úff ég hef voðalítið annað að segja en PIRRR og afhverju er ég pirruð, jú af því ég geri ekkert annað þessa dagana en að gefa sjálfri mér loforð um hitt og þetta, skólann, ræktina, mataræðið, svefninn og ég stend við fæst af þessu :S Stend kannski við það í 2 daga en svo bara no more ... Ég veit samt alveg hvað það er sem ég þarf að gera, bíð bara eftir að ég verði algjörlega komin með nóg og þá þarf maður að fara að dusta rykið af aganum og dru***** á fætur fyrir kl. 8 á morgnanna svo að maður nái að mæta í tíma og nái svo að læra eitthvað líka .. ! Ætli maður verði ekki að setja no-no á allt djamm næstu vikurnar/mánuðina :S helgarnar setja alltaf allt á hvolf hjá mér ... Bootcamp byrjar næsta mánudag en ég missi af fyrsta tímanum : ( Þannig ég að ég missi af öllum mælingunum og þeim skemmtileg heitum : ( Ohh ég hlakka svo til að fara að sprikla :Þ Kv. Izan

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Hæ dúllan mín - ekki vera alltaf að velta þér upp úr því sem ekki gengur 100% - miklu betra að hrósa sér fyrir það sem gengur vel, þar hefur þú af nógu að taka :-)
Það er engin dauðasynd að fá sér nammi og vera latur, en ef maður leyfir sér að sukka smá og er þar að auki með samviskubit yfir því - þá er það dauðasynd :-)
Bless í bili og góða ferð til Berlínar - Mamma í Helsinki

Anónimo dijo...

Þetta líður hjá :o) Það gengur allt upp ef þú gerir það með bros á vör, sannaðu til, jákvæðni getur fleitt manni nokkuð langt :o) Góða ferð til útlandanna, hlakka til að sjá svo framan í þig á miðvikudaginn :D Klár í slaginn !

Anónimo dijo...

Góða ferð!!