jueves, 7 de septiembre de 2006

orka óskast ! get sótt

Ég var búin að hlakka svo til að byrja í skólanum, komast aftur í sálfræðina og halda áfram með námið en svo þegar hann loks byrjaði þá fór allt á hvolf hjá mér. Þetta ömurlega stress sem fylgir þessu námi og pressan, ég er bara ekkert viss um að mig langi að líða illa í 2 ár í viðbót bara fyrir BA. Ég og Rebekka beiluðum svo á Bootcamp í gær, vorum ekki alveg í baráttustuði og fórum því bara í klst langan göngutúr um Seltjarnarnesið. Ég hef svooo lítið að segja þessa dagana, vona bara að ég fari að rífa mig upp úr þessari lægð, er mest bara pirruð og syfjuð og þetta er að gera mig vitlausa. cHAo

No hay comentarios.: