domingo, 24 de septiembre de 2006

mér dettur aldrei neitt í hug til að setja hérna

Það er svo kósý að vera í vinnunni minni núna, sumartörnin alveg búin og því lítið að gera. Húsið er fullt af stúdentum sem láta ekki mikið hafa fyrir sér : ) Sem betur fer segi ég nú bara því ég er að nýta þennan tíma til að vinna upp lesturinn :O Jiminn ég er ekki enn búin að fara yfir allt námsefni fyrstu vikunnar : / en ég er að saxa á þetta hægt og rólega. Ef ég tek næstu 2 vikur og verð alveg 100% dugleg þá ætti ég að ná að komast á núllpunkt þannig að ég þarf bara að lesa það sem er fyrir komandi viku ... Annars er ég bara orðin hress og hlakka mikið til að mæta í FYRSTA BOOTCAMP TÍMANN Á MORGUN ... loksins loksins. Ég er reyndar enn svolítið kvefuð en ég ætla ekki að láta það stoppa mig :Þ Jamm best að halda áfram með lesturinn ...

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég hef á tilfinningunni að ef ég verð 150% dugleg myndi ég ekki ná að komast á núllpunkt á tveimur vikum :|

í augnablikinu er ég að læra fyrir hugfræðiprófið, þarf svo að læra fyrir umræðutíma í félags, næst fyrir fyrsta klínuprófið og svo koll af kolli. Er ekki einu sinni búin að líta í félagssálfræði bækurnar og er langt á eftir í hinum tveimur fögunum......hvernig er þetta hægt á aðeins 3 vikum?!? Þetta er fáránlegt!

Anónimo dijo...

haha ohh æææ ég var komin með langt ýtarlegt svar um hvað ég ætti eftir að læra hrikalega mikið en á undarlegan hátt tókst mér að eyða því :Þ

Sé fram á lestur dag og nótt næstu vikurnar og engin skemmtilegheit ef mér á að takast að ná þessu : / Ég bara skil ekki hvernig er hægt að lenda svona langt á eftir þegar það eru bara 3 vikur búnar af skólanum :Þ :/ en einhvern veginn tókst manni það ...

Anónimo dijo...

úff púff, eintómir brjálæðingar þarna í sálfræðinni, kannski verið að tryggja að þeir sem ná að útskrifast hafi einhverja sjúklinga í framtíðinni...? en láttu vita ef það róast eitthvað og þú hefur tíma til að taka pásu og kíkja á kaffihús eða eitthvað :)