viernes, 1 de septiembre de 2006

kannski einum of jákvætt :Þ

Einn kennari virðist hafa lesið hugsanir mínar (eða kannski bloggið ; )) því að í gærkvöldi setti hann inn námskeiðslýsingu : ) ekki kennsluáætlun þó ! Í dag er ég að taka síðustu sumarvaktina mína : O Já sumarið er officially búið ! Ég verð bara að segja að þetta var æðislegt sumar, ég og María eigum yndislegar minningar, ég eyddi miklum tíma með fjölskyldunni minni, er síðan búin að passa að knúsa Orrann minn mikið frá því ég kom heim því ekki sá hann mikið af mér í sumar. Vinnan mín er náttúrulega alltaf jafn æðisleg og ekki skemmdi það fyrir þegar ég fékk 30 þús kr meira útborgað í dag en ég bjóst við. Jahá þá voru taxtarnir víst hækkaðir í sumar : D Þannig í hnotskurn; æðisleg vinna, æðisleg fjölskylda, besti kærasti í heimi, yndislegir vinir, skemmtilegt nám =frábært líf. Ég bara get ekki kvartað í dag : )
Planið var að fara í Bootcamp prufutíma í dag en hvaða hvaða tíminn féll niður ! Næsta tilraun verður því miðvikudaginn sem kemur, þá hljótum við að komast : D Annars ákvað ég ekkert að vera að bíða eftir að námskeiðið byrjaði til að fara að borða (já yfirhöfuð bara borða mat því ég er ansi löt við það). Núna er líka allt nammi og gotterí alveg úr myndinni :' ( en ætli ég lifi það ekki af : Þ Er það samt ekki klassískt að daginn sem ég hætti að borða nammi skilur einhver eftir stóran poka af súkkulaðikossum hérna í mótttökunni og allir eru að gæða sér á því ! míns má ekkert fá. Svo kom einn gestur og gaf mér 3 pakka af mentosi ... hver vill eiga? Jebb lífið er ljúft, er búin að vinna kl. 13:30 og þar sem ég er bíllaus þá er ég að spá í að fara heim og taka kraft tiltekt í íbúðinni, gera svona allt sem maður hefur venjulega ekki tíma fyrir : Þ La sonrisa

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Hvernig mentos? ávaxta eða minntu? það skiptir nebbla öllu! ég skal eiga ávaxta ;)

Íris dijo...

2 pakkar af ávaxta og 1 pakki af myntu :Þ Þú mátt eiga þessa ávaxtapakka ;)