miércoles, 6 de septiembre de 2006
hvað
Jahá missti smá vitið í gær og var alveg súperlöt ! borðaði líka haug af nammi og horfði á svo mikið af That '70s show að hausinn á mér soðnaði ! Gerði þó eitt af viti, ég fór til Örnu formanns og við ákváðum allt sem þarf að tala um á húsfundinum sem verður núna fljótlega .... jahá svona er lífið sem aðstoðarformaður hússjóðs ; ) Vonandi Vonandi Vonandi verður núna loksins eitthvað gert við ganginn, hann er algjörlega ojjojj.
Afrekaði það í dag að ELDA mér levepostej eða hvernig sem það er skrifað :Þ mmmm brauð með heitri lifrakæfu og rauðbeðum, alveg undarlega gott !
vonandi bootcamp á eftir, er þrammandi um allt á íþróttaskónum mínum svona til að sjá hvort að hælsærið meiði mig. Verð að viðurkenna að það er oggupoggusmá kvíðahnútur í maganum, úff ég vil ekki vera SÍÐUST !! :'(
jæja farin að þykjast læra, er heima þannig að það sem ég geri í raun og veru er ekkert ...
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Ekkert betra en að missa vitið í smá stund, lífið er sjaldan betra en þegar maður finnur vitið aftur ;) Við verðum að finna tíma til að spjalla fljótlega!!!!
Publicar un comentario