Jamm gat það nú verið ... ég var ekki bara sjúskuð eftir flugið í gærmorgun heldur hafði einn lítill flensus læðst aftan að mér og eyddi ég gærdeginum undir sæng með eldrauðann nebba eftir allt snýteríið : / Missti af jóga í gær og ég get ekki mætt í Bootcamp í dag : ( En það verður bara að hafa það, vonandi verð ég bara orðin hress á föstudaginn : )
Það vakti mikla gleði hjá mér að heyra að nú hafa einhverjir fengið nóg af hor-mjónum tískubransans og tók borgarstjórn Madridar til þess ráðs um daginn að banna fyrirsætum með BMI undir 18 að taka þátt í Tískuvikunni þar í borg. Upphaf þessa var að spænsk fyrirsæta, 22 ára að aldri, hneig niður eftir tískusýningu í S-Ameríku og dó eftir að hafa nánast ekkert borðað í 3 mánuði !! Í kjölfarið tóku yfirvöld í Milan undir þetta bann og núna síðast heyrði ég að London væri að gera slíkt hið sama. Þess ber þó að geta að samkvæmt stöðlum er einstaklingur með BMI 18 vannærður ...
Einhverjar mótmælaraddir hafa þó heyrst og fyndnast fannst mér þegar einhver sagði að þetta væri illa gert gagnvart fyrirsætum sem væru náttúrulega grannar, ég hef litla trú á því að einhver sé náttúrulega með BMI undir 15 ! Til að vera með BMI undir 15 þarf kvenmaður sem er 175 cm á hæð að vera 45 kíló eða léttari !
Jamm og já - farin að fá mér að borða
miércoles, 20 de septiembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario