jueves, 28 de septiembre de 2006

Er maður nokkurn tímann jafn einmana og þegar maður er umkringdur fólki?

Bootcamp í dag ... loksins, harðsperrurnar strax mættar á svæðið. Mér hefur aldrei verið jafn illt í lungunum og á æfingu í dag, þau virtust bókstaflega vera við það að brenna þegar ég var að hlaupa fimmtu ferðina upp tröppurnar og mér fannst ég hlaupa í slowmo ... Æfing aftur á föstudaginn og vonandi verður maður ferskur þá ! Annars er voða lítið í gangi nema skóli skóli skóli, ótrúlegt en satt þá er mér að takast að ná takmarki mínu og ég held ég verði búin að vinna eiginlega allt efnið upp á föstudaginn, ég reyndar á eftir að lesa haug af greinum í Félagslegu en ég er að saxa á það svona hægt og rólega... Ég var komin upp í rúm en var svo bara ekkert á leiðinni að sofna svo ég er farin á fætur aftur. Planið var að mæta í tíma kl. 8:20 á morgun : / sé það ekki vera að fara að gerast úr þessu ... gn

1 comentario:

Anónimo dijo...

Takk fyrir skemmtilega og erfiða æfingu í gær, hlakka til að hitta þig á morgun hress á káta :o)