Ég lærði í alla veganna 11 tíma í dag ! og btw þá var ég að vinna 12 tíma vakt á Sunnu líka ... ! Vinnan mín er svo sweeeeet, það bara hríslaðist um mig sælan þegar ég settist niður inn í eldhúsinu á Sunnu í morgun og borðaði hafragrautinn minn. Þvílík ró : ) það er greinilega kominn vetur ...
En alla veganna þessi ró og kyrrð setti mig bara í þennan svakalega lærdómsgír að ég lærði alveg þrefalt meira en ég bjóst við að komast yfir : O svo þegar ég kom heim kl. rúmlega 22 þá gat ég bara ekki hætt svo ég lærði aðeins meira ... ! og þá ákvað ég að hætta áður en ég læsi yfir mig :Þ
Bootcamp á morgun og svo líka á miðvikudaginn og föstudaginn. Á þri og fim ætla ég svo í jóga sem ég held að verði ágætis mótvægi við Boocampið, þar fær maður almennilegar teygjur fyrir þreytta vöðva : )
En já ég verð varla mikið til tals næstu vikuna ef ég ætla að ná að vinna upp skuldirnar mínar í skólanum. Mig má þó alltaf finna á MSN :Þ Ég mun vakna, læra, mæta í tíma, læra, læra, mætaá æfingu, læra og sofa .... vonandi finn ég tíma til að borða þarna inn á milli :Þ
-ÍÓÓÍ-
lunes, 25 de septiembre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Æ, þú ert svo dugleg skvís, hlakka til að sjá þig á morgun, hressa og káta :D
Publicar un comentario