Það er svo ótrúlegt hvað maður man vel hvað maður var að gera á dögum eins og 11. september 2001.
Í mínu tilviki var ég nýkomin til Venezuela. 4 dögum áður hafði ég flogið yfir Atlantshafið frá Amsterdam og var varla búin að koma mér fyrir og taka upp úr töskunum. Þegar ég fór fram úr um kl. 9 var kveikt á sjónvarpinu á inni í eldhúsi og spænska CNN í gangi. Þegar ég kem fram þá sé ég annan turn WTC standa í ljósum logum. Ég reyni að spyrja bróður minn (aðallega á puttamáli því ekki talaði ég spænsku og hann ekki ensku) og hann skildi mig nógu vel til að leika flugvél og ég hugsaði guð hvað þetta er hræðilegt slys. Rétt eftir þetta sá ég svo seinni flugvélina lenda á Suður Turninum og þá vissi ég að þetta gat varla verið slys ...
Í gær horfði ég á heimildamynd á RÚV um "The Jumpers" eða fólkið sem að stökk úr turninum þegar það vissi að það myndi aldrei komast út lifandi. Ég réð ekki við tárin, spáið í örlögum, að þurfa að taka þá ákvörðun að stökkva út úr glugga á 100. hæð einfaldlega af því annars brennur þú inni.
Ég átti reyndar erfitt með að skilja þann hluta myndarinnar þar sem verið var að reyna að finna út hver einn af þeim sem stukku hafði verið... Fannst það tilgangslaust og mjög óhugulsamt svona rétt eftir þessa atburði. Svo enduðu þeir á að særa heila fjölskyldu alveg til einskis !
Ótrúlegt að 5 árum eftir hryðjuverkin erum við í enn verri heimi þar sem kraumar reiði og hatur. Núna höfum við þrjú hryðjuverk sem gerst hafa á þeim 11.

11. september
11. júlí
11. mars
Vonandi bætast ekki fleiri við


2 comentarios:
Ég held að í gær hafi ég í fyrsta skipti virkilega horft á myndir af þessu, þannig að ég hafi séð báðar vélarnar. Þetta hefur einhvern veginn alltaf farið framhjá mér, alveg frá því að ég var úti á Ítalíu og sá þetta óheppilega flugslys á einhver háhýsi.
ég horfði líka á myndina og hágrét eins og smábarn!
Held samt að ástæðan fyrir því að blaðamaðurinn vildi finna út hver "the falling man" var, var sú að þetta var orðið svo rosalega fræg mynd og með því að segja sögu mannsins myndi hann selja mörg mörg mörg blöð
Publicar un comentario