sábado, 19 de agosto de 2006

svoooo svöng

Ó já ég er í vinnunni. Búin að hrista af mér leti og slen síðustu daga og er nú bara ágætlega hress --- jahh fyrir utan það hvað ég er svöng í MAT og það er ekkert eldað hérna á Sunnu í dag : ( og ég kemst ekkert til að kaupa mér að borða svo ætli ég verði ekki bara að narta í allan dag :S En já menningarnótt í dag og það eina sem ég sé af henni eru bílarnir sem endalaust hrúgast hérna upp á allar stéttir. Ég er búin að hanga í allan morgun að skoða framhaldsnám. Er enn alveg jafnspennt fyrir heilsusálfræðinni en mér gengur eitthvað illa að finna skóla sem að kenna hana. Ég held líka að ég drífi mig bara núna og klári sálfræðina með 90e en ekki 60e eins og ég ætlaði að gera. Fyrst ég ætla hvort sem er í framhaldsnám í sálfræði þá er eins gott að læra bara sem mest af henni :P (þá get ég líka verið lengur í skóla :D) Já mér leiðist svolítið og hungrið er farið að segja meira til sín Ef einhver góðhjartaður er á leiðinni niður í bæ (líklegara í dag en aðra daga) þá myndi ég þiggja rétt dagsins frá Grænum Kosti og svo Minstrels úr Krambúðinni : * Bless í bili

No hay comentarios.: