Á sunnudeginum eftir menningarnótt í fyrra þá labbaði ég í gegnum bæinn ... í morgun tók ég bílinn af því að mér fannst ekki öruggt að labba :S Um daginn var ráðist á stelpu á leið til vinnu í Breiðholtinu og reynt að nauðga henni og svo nokkrum dögum seinna var reynt að ræna 2 ferðamenn á leið niður götuna frá Sunnu : ( ojj mér líkar þetta ekki :S
En já það er alltaf spes að vera snemma á ferð morgnanna eftir alræmdar djammnætur; fullt fólk út um allt og úff hvað förðunin sem var svo flott í gær getur verið sjúskuð kl. 7 morguninn eftir : / :Þ
En já rólegaheitakvöld hjá mér í gær, horfði á flugeldasýninguna úr glugganum heima og var bara með eitt besta útsýnið. Fólksfjöldinn á Sæbrautinni var svakalegur og það var enn svakalegara að sjá þegar þetta fór alltaf stað eftir flugeldana ... bílflauturnar stoppuðu varla næsta klukkutímann ...
Svo eru núna nokkrir dagar í Reunionið, var að spá hvort að maður þyrfti ekki að vera með flotta lygi um allt það merkilega sem maður er búin að gera frá því maður kláraði grunnskóla ... Mín á að vera einhvern veginn svona: Tók framhaldsskólann bara í fjarnám og nýtti tímann í að ferðast um heiminn á einkaþotunni minni (sem ég fékk í arf). Ég fann upp Post-it miðana og er núna milli. Ég á hús á Arnarnesinu og þarf aldrei að taka til né elda því ég borga öðrum fyrir að gera það fyrir mig. Og já svo á ferðalaginu mínu um heiminn fékk ég borgað fyrir að liggja í sólbaði og borða bláber bara af því ég er svo mikið æði :D
Hljómar þetta ekki trúverðugt :Þ Hljómar alla veganna meira spennandi heldur en the real life situation ... hún er meira svona: Kláraði grunnskóla, fór í fjölbraut, tók hann á 3 árum og eyddi 1 í Vzla. Svo var það Uni og ég er þar flakkandi á milli deilda því ég get ekkert ákveðið. Keypti mér íbúð fyrir 2 árum síðan og bý núna með mínum heittelskaða .... ohh mig langar í einkaþotu !


2 comentarios:
Breytta útlitið er flott :) líka þægilegra að lesa textann á þessum bakgrunni heldur en svarta bakgrunnninum. Annars myndi ég nú telja það talsvert merkilegt að vera búin að ferðast um mikinn hluta ausur-evrópu og til suður-ameríku, amk er það meira en flestir hafa gert.
Æ, mér finnst svo sorglegt hvernig miðbærinn er að verða. Finnst hann yfirleitt svo vinalegur, en ég þori ekki að vera á ferð þar ein, seint að kvöldi eða senmma morguns :o,
Publicar un comentario