domingo, 20 de agosto de 2006

Á sunnudeginum eftir menningarnótt í fyrra þá labbaði ég í gegnum bæinn ... í morgun tók ég bílinn af því að mér fannst ekki öruggt að labba :S Um daginn var ráðist á stelpu á leið til vinnu í Breiðholtinu og reynt að nauðga henni og svo nokkrum dögum seinna var reynt að ræna 2 ferðamenn á leið niður götuna frá Sunnu : ( ojj mér líkar þetta ekki :S
En já það er alltaf spes að vera snemma á ferð morgnanna eftir alræmdar djammnætur; fullt fólk út um allt og úff hvað förðunin sem var svo flott í gær getur verið sjúskuð kl. 7 morguninn eftir : / :Þ En já rólegaheitakvöld hjá mér í gær, horfði á flugeldasýninguna úr glugganum heima og var bara með eitt besta útsýnið. Fólksfjöldinn á Sæbrautinni var svakalegur og það var enn svakalegara að sjá þegar þetta fór alltaf stað eftir flugeldana ... bílflauturnar stoppuðu varla næsta klukkutímann ... Svo eru núna nokkrir dagar í Reunionið, var að spá hvort að maður þyrfti ekki að vera með flotta lygi um allt það merkilega sem maður er búin að gera frá því maður kláraði grunnskóla ... Mín á að vera einhvern veginn svona: Tók framhaldsskólann bara í fjarnám og nýtti tímann í að ferðast um heiminn á einkaþotunni minni (sem ég fékk í arf). Ég fann upp Post-it miðana og er núna milli. Ég á hús á Arnarnesinu og þarf aldrei að taka til né elda því ég borga öðrum fyrir að gera það fyrir mig. Og já svo á ferðalaginu mínu um heiminn fékk ég borgað fyrir að liggja í sólbaði og borða bláber bara af því ég er svo mikið æði :D Hljómar þetta ekki trúverðugt :Þ Hljómar alla veganna meira spennandi heldur en the real life situation ... hún er meira svona: Kláraði grunnskóla, fór í fjölbraut, tók hann á 3 árum og eyddi 1 í Vzla. Svo var það Uni og ég er þar flakkandi á milli deilda því ég get ekkert ákveðið. Keypti mér íbúð fyrir 2 árum síðan og bý núna með mínum heittelskaða .... ohh mig langar í einkaþotu !
Meira bullið, leiðist í vinnunni, farin að borða hádegismat Fjallageit með fjallaþrá (því hún hefur ekki komist í göngu í næstum 2 vikur :()

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Breytta útlitið er flott :) líka þægilegra að lesa textann á þessum bakgrunni heldur en svarta bakgrunnninum. Annars myndi ég nú telja það talsvert merkilegt að vera búin að ferðast um mikinn hluta ausur-evrópu og til suður-ameríku, amk er það meira en flestir hafa gert.

Anónimo dijo...

Æ, mér finnst svo sorglegt hvernig miðbærinn er að verða. Finnst hann yfirleitt svo vinalegur, en ég þori ekki að vera á ferð þar ein, seint að kvöldi eða senmma morguns :o,