domingo, 27 de agosto de 2006

sunnan í lífi mínu

Tölvan mín eða BlogSpot er eitthvað ekki alveg samvinnuþýður þessa dagana því ég bara get ekki uploadad myndunum af Reunion (haha ég var að uppgötva það í dag að ég ber reunion alltaf fram eins og það er á spænsku en ekki ensku semsagt reúníon en ekki ríjúnion or whatever :Þ) Mér tókst þó að koma þremur inn og hér koma þær, restin kemur líklegast bara seinna :Þ
Dadara 3 vikur í Bootcamp og ég hlakka svo til að ég sef ekki á nóttunni ... Ohh ég hefði svo viljað geta byrjað strax þarna í byrjun ágúst en óreglulegi vinnutíminn minn kom víst í veg fyrir það. Ég ætla að vera svo súperdugleg því að planið næsta sumar er að ganga á Hvannadalshnjúk :D Svo er ég líka að gæla við þá hugmynd að fara á Hornstrandir næsta sumar en það verður að koma í ljós :Þ Annars er spennó ganga næsta sunnudag, hver er game?? 12-14 km og ekki nema 300 m hækkun þannig þetta er svona 6 tíma gangur ... Mamma, María, kannski Rebekka ;) ?? Frídagur hjá minni á morgun, Orrinn að byrja í skólanum og ég öfunda hann heilann haug. Verð þó reyndar að viðurkenna að ég er farin að finna fyrir ört vaxandi kvíðahnút :S Úff vil sko ekki fara í sama stresspakka eins og þetta var þegar ég hætti í sálfræðinni. Er kannski búin að læra betur á sjálfa mig, virkar greinilega ekki vel að vera í 100% erfiðu háskólanámi og vera í 2 vinnum :S Nei núna er það bara ein vinna og ekki 4 vaktir á viku eins og síðast heldur meira kannski 4 á mánuði :Þ Annars er ég bara farin að hlakka til vetursins, chilla og horfa á Despó með flísteppi yfir mér og hitarann í gangi því íbúðin mín heldur ekki hita :Þ Er líka að spá í að fá mér skáp uppi á Þjóbó og læsa bækurnar mínar þar inni því þá neyðist ég til að mæta á Hlöðuna til að læra :Þ Ég er svo gjörn á að fara að gera eitthvað allt annað þegar ég reyni að læra heima :Þ Ein mynd frá sumrinu :Þ Ég og María vorum þarna í kasti því við höfðum bara akkúrat þetta pláss sem ég sit á til að sofa BÁÐAR ! Við stukkum af stað frá Hallstatt kl. 16 seinnipartinn í algjörri óvissu um að komast til Króatíu. Svo biðum við til 02 um nóttina til að ná þessari nætur lest og hún var þá algjörlega STÚTFULL af fullum Króötum á leiðinni heim af HM - Það sést svo greinilega hvað ég er dauðuppgefin og þreytt þarna enda svaf ég alveg helling þessa nótt þrátt fyrir að hafa þurft að standa upp í hvert sinn sem við fórum yfir landamæri og svo líka í hvert sinn sem einhverjum datt í hug að fara á klósettið (við vorum við hurðina !). Ótrúlegt en satt þá átti þessi nótt samt ekki vinninginn yfir óþægilegustu nóttina ! Bæjó hin ofurhamingjusama Íris

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Mamman er með...

Anónimo dijo...

Sætar myndir skvís :o)
Ég væri sko game í hressandi göngu, ef ég væri ekki að fara læra undir próf alla helgina :o( Týpískt ! En jæja ertu búin að skrá þig, ég sá að maður getur skráð sig í tímana kl. 19.15, en spurning hvort þeir verði, var svona að spá, af því ég er alltaf svo lengi að vinna á mánudögum, hehehehe...alltaf er það eitthvað ;o) En allavega farin að skrá mig skvís ! heyrumst :o)

Anónimo dijo...

frabært ad lesa hvad thu ert anægd med lifid og tilveruna! og Dugleg! hvenær ætlid thid Orri til Berlin?
kvadja Ola