Úff það er ótrúlegt hvað maður getur stundum sveiflast í skapi : /
Í gær var allt ómögulegt, ég var svo dauðþreytt og þó ég færi ekki á fætur fyrr en á HÁDEGI þá gat ég varla haldið augunum opnum stórann hluta dagsins ... svo bara allt í einu um kvöldið var ég orðin svo svaka hress og er það enn:Þ
Ég veit ekki alveg hverju er um að kenna, lenti reyndar í leiðinda rifildi við manneskju sem er mér kær þarna í fyrradag og það hefur kannski sett mig svona alveg úr skorðum en annars vil ég kenna um þessum helvítis hormónum. Það böggar mig ekkert smá að þurfa að taka pilluna svona eins og ég geri, þ.e. alveg án þess að taka pásur en það er voðalítið annað sem ég get gert. Ég reyndar var að skipta um pillu núna og fór á þessa "brjóstagjafarpillu" sem er með mun minni hormónum því ég er svo hrædd um að eftir 10 ár eða eitthvað komi í ljós að þetta sé stórskaðlegt :S En það er víst ekki mikið annað sem ég get gert, jahh nema unga út börnum en það er ekkert víst að það lagi nokkuð :(
haha jæja nóg af vorkenni
Ég fékk mér frí í vinnunni í dag, þarf reyndar að mæta í 3 tíma núna kl. 16:30 en annars er ég búin að vera að nota tímann í allsherjartiltekt. Skólinn byrjar næsta mánudag og ég veit að ef að ég er ekki búin að þessu fyrir það þá á ég ekki eftir að koma mér í að lesa svo ég tek eitt herbergi fyrir í einu og HENDI eins miklu og ég get :Þ
Úff svo eru 3 dagar í prufutímann í Bootcamp :O haha ég kvíði svo fyrir að horfast í augu við mitt lélega þol og litla kraft en ætli maður verði ekki kominn í svaka form í desember :Þ
Jæja ætla að fara að taka úr þvottavélinni og skella mér svo í vinnus
martes, 29 de agosto de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
Æ, það er eðlilegt að maður sé svona upp og niður, bara eðlilegt í þessu nútímasamfélagi okkar ;o) En gott að þú sért orðin hress og kát, eins og þú átt að þér að vera ! En já ég hugsa að það verði smá grát og gníst tanna hjá mér á föstudaginn ;o) Annars hafðu það gott það sem eftir er dag skvís !
Spurning hvort þú hafir verið grumpy akkúrat út af því að þú svafst til hádegis??? Kannast allavegana við þessa lýsingu; sofa lengi, vakna seint, vera þreytt allan daginn nema á slaginu 10 vilja helst setja músíkina í botn og fara að taka til ;)
Publicar un comentario