sábado, 19 de agosto de 2006

súkkulaðihnetufiskur

Jæja ég vissi ég ætti eftir að blogga aftur í dag ... það er búið að vera ansi rólegt hérna hjá mér. Fáir að checka út og fáir að checka inn og þó að húsið sé fullt þá eru bara allir einhvers staðar að menningarnóttast... Ég þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af sveltinu og nartinu því að ég er í bestu vinnu í heimi og það er dekrað við mig :P Fiskisúpa, hnetutoppur og súkkulaðikaka - Gerist það betra :D Svo verð ég eiginlega að fá smá feedback út á síðuna - Hvernig er nýja lookið ?? Ég er ansi hrifin, ekkert smá gaman að geta loksins breytt útlitinu án þess að vera hrædd um að tapa öllum linkum og breytingum. Á reyndar enn eftir að mastera þetta alveg, þeir voru bara að breyta Blogger eitthvað í tengslum við Google og ég held að það eigi eftir að koma betur í ljós hvernig þetta verður í lokin, enn eru alla veganna örfáir gallar en ég trúi ekki öðru að þeir lagi þá :) Svo síðast en alls ekki síst þá á SELMUS er 22 ára í dag :D Til hamingju með daginn sæta, hlakka til að sjá þig næsta föstudag :*

1 comentario:

Anónimo dijo...

Rosa flott look ! Alltaf gaman að geta breytt smá til, sérstaklega þegar það kemur svona vel út :o)