martes, 8 de agosto de 2006

Mega göngublogg - bara fyrir ógöngufúla

Enn einn dagurinn í vinnunni og ég er ansi sár út í alla bloggarana sem ég les ... Það hefur bara enginn bloggað FOR DAYS og mér leiðist ! koma svo :)
Annars á ég eftir 3 tíma í vinnunni og ég sé fram á að þeir verði busy, af þeim 25 herbergjum sem ég á von á hafa bara 7 komið, þannig að ég sé fram á að milli 17-19 mæti allir :O alltaf gaman þegar það er nóg að gera :) Ég lít út um gluggann og sé þetta geggjaða gönguveður ! eins gott að það verði líka svona gott annað kvöld þegar ég fer á Kerlingarhnúk, bara 300 m hækkun og 7 km allt í allt ... Þvílíkt yndi :D Annars eru margar spennandi göngur framundan og ég ætla að sjá hvað ég get mætt í (og á pening fyrir). Klakkur á sunnudaginn, 3 skór, bara 500 m hækkun en gangan er hvorki meira né minna 30 km sem þýðir 10-12 tíma gangur ! Klakkur "einn af útvörðum Langjökuls" Við Orri erum annars líka að spá í að fara í göngu bara sjálf á sunnudaginn og það á eftir að koma í ljós hvað verður þá fyrir valinu - kannski Móskarðshnúkarnir eða að við brunum út að Reykjanesvita :P Ú og svo er önnur alveg svakalega spennandi ganga um Menningarnæturhelgina, ferð frá fös-sun á Snæfellsjökul : ) Nokkrir gallar þó við það; það er gist í skála sem þýðir að hún verður líklegast svolítið dýr og svo er ég tæknilega á 12 tíma vakt báða dagana : / maður má þó láta sig dreyma :) Á toppi Snæfellsjökuls Haha já ég komst að því á ferðinni að ég gæti aldrei búið í stórborg í útlöndum (alla veganna ekki til mjög langs tíma). Ég fæ bókstaflega innilokunarkennd, ég finn meira segja fyrir henni þar sem ég bý núna í miðbænum. Það er svo gaman að ganga á fjöll, finna sigurtilfinninguna þegar maður kemst dauðþreyttur upp á topp og það er svo ótrúlegt að einföld túnfisksamloka bragðast eins og gourmet máltíð á fjallstoppi :P Haha já það er ótrúlegt að hugsa til þess að ég hafi alltaf verið hundpirruð út í mömmu þegar hún var að reyna að draga mig með sér í göngur hérna fyrir nokkrum árum síðan. Svo "neyddi" hún upp á mig pari af gönguskóm þegar ég átti 19 ára afmæli og áður en ég vissi af var ég orðin algjör fjallageit :P Ætli ég verði ekki bara að segja Takk Mamma :* ég held samt að hana hafi bara mest langað í félagsskap ;) Já enn eitt göngubloggið, ég er bara svo ánægð með að vera komin heim :D

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég er búin að blogga :) Og núna búin að kommenta líka ;) Ég þarf að fara einhvern tíman að skoða Reykjanessvita, ég hef aldrei komið þangað (hef prílað í klettum á vopnafirði og kíkt í búðir á Kópaskeri en aldrei komið lengra út á Reykjanes en á Kef.flugvöll...)

Anónimo dijo...

Hehehehehe...ég er líka búin að blogga megaþjóðhátíðarblogg og nokkrar svæsnar myndir komnar inn, tékkaðu á því, ef þér leiðist í vinnunni :o)
En já það jafnast ekkert á við íslenska fjallaloftið, ég elska það ! Mér líst nú best á Snæfellsjökul, ótrúlega flottur, hef einu sinni komið upp á hann og langar sko að endurtaka það einhvern tíma aftur við tækifæri. En vona að við getum farið að finna tíma til að hittast :o) Hafðu það sem best snúlla !