Önnur 12 tíma vakt í vinnunni, ég hef nóg af vinnu alla þessa vikuna, næsti frídagur ekki fyrr en á laugardaginn en þá fer ég reyndar í 3 daga frí :D Annars veitir mér nú ekkert af því að VINNA því að visa skviza kemur í heimsókn til mín um næstu mánaðarmót og þá þarf víst að borga :) og það er nú eins gott að eiga fyrir henni !
Það er alveg týpískur ágústfílingur í mér - þvílík plön í gangi, lofa bót og betrun í öllu og er nú þegar farin að standa við sumt af því. Ágúst fyrir mér er eins og áramótin hjá flestum, tími til að gera breytingar og líta yfir það sem betur má fara innra sem ytra í lífi manns, ég er bara aldrei í stuði fyrir breytingar í dimmum janúarmánuði :)
Reyndar ganga ekki öll heitin mín eins vel, ég hef ekki komist í göngu frá því síðasta miðvikudag og ég kemst ekkert fyrr en á sunnudaginn næsta því ég er alltaf að vinna til 19:30, maður verður víst bara að nýta þann tíma sem maður fær og reyna að hreyfa sig sem mest í vinnunni (sem er reyndar ekki erfitt því ég er stanlaust hlaupandi þessar 4 hæðir sem eru hérna á Sunnu).
Ég get líka ekki beðið eftir að byrja í Bootcamp ! Verst að það þurfi að vera næstum 1 og hálfur mánuður í það : / svo missi ég líklegast af fyrsta tímanum því ég verð ekki heima :S Svo ætla ég líka að vera dugleg í jóganu í vetur :P Það bara gerist voðalega lítið í þessum duglegheitum á meðan ég er að vinna svona mikið því ég er á svo óreglulegum vöktum og svo kem ég líka til með að vera að vinna flestalla daga í ágúst - Í vetur verður þetta mun betra, bara önnur hver helgi 2x12 tíma vaktir ... SwEeT
Ú og eru ekki allir farnir að hlakka til að byrja aftur í skólanum !! :) eða er ég bara ein ;) Ég er að fara í svo áhugaverð námskeið; félagslega sálfræði og hugfræði (jahh og svo líka í próffræði). Svo ætla ég líka að taka 1 námskeið í spænsku; Spænskar Kvikmyndir. Það er bara 2,5 eining og stangast ekkert á við stundatöfluna í sálfræðinni svo ég held að þetta sé bara fullkomið :)
Jæja tveir og hálfur tími eftir ... það eiga enn 15 herbergi eftir að mæta á svæðið og núna heyri ég í einu labba innum dyrnar --- chao

No hay comentarios.:
Publicar un comentario