viernes, 4 de agosto de 2006

Hver og einn skiptir máli !

Ohhh mig langar svo í göngu en það þarf svo virkilega að TAKA TIL hérna heima ... Þrátt fyrir rigninguna þá sé ég það alveg í hyllingum að skella mér á eitthvað fjallið hérna í nágrenninu .... Ég svo sver það að um leið og ég hef efni á því þá mun ég borga einhverjum fyrir að taka til heima hjá mér ! Ég hef enga hæfileika á þessu sviði ! og Orri er meira segja sammála mér í því ! Annars er ég búin að vera súperdugleg í morgun, vaknaði rétt fyrir 10 :P og skutlaði Orra í vinnuna - Svo fór mín bara og keypti í matinn (það hefur ekki verið gert síðan í apríl !) og á leiðinni heim úr búðinni kom ég við Esso og ryksugaði bílinn, henti öllu draslinu úr honum og þreif hann eins vel að innan og ég gat með þeim takmörkuðu áhöldum sem ég hafði :P en vá þvílíkur munur !! Æ ætli ég drífi ekki í mig smá orku og taki bara íbúðina í gegn og gangan verður bara að bíða seinni tíma ... Mig langar að reyna að fara alla veganna 2x í viku í fjallgöngu í ágúst svo að ef einhver er í fjallgöngustuði þá endilega tala við mig ;) Móskarðshnúkarnir heilla mikið núna ! Hef ekki farið þangað síðan sumarið 2003 og þá algjörlega missti ég vitið af lofthræðslu þarna uppi :P Held að það gerist ekki aftur þar sem núna veit ég að þegar maður kemur upp þá sér maður allt í einu niður í hyldýpið hinum megin ... :S Hmmm já og ég er alveg húkt á That '70 show þessa dagana, ó men ég hlæ jafn mikið yfir þeim og Friends ! Þá er ekki meira í Írisarfréttum ! leita þó eftir húshjálp, fær að launum knús og 1 koss !

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Þú gætir kannski platað mig í göngu einhverntíman, það er aldrei að vita ;) Bara svo lengi sem það er e-ð aðeins meira spennandi en fjallið sem við löbbuðum á í vor í mosó... þar sem toppurinn virtist aldrei ætla að koma!
Og That 70's show er æði :)

Anónimo dijo...

hehe Kristín ég held að flest fjöll á Íslandi séu bara svona, maður sér aldrei toppinn og maður mun a.m.k. halda 4 sinnum að þetta hljóti nú að vera toppurinn :P

Anónimo dijo...

hehe, þetta fjall var nú samt alveg extra extra, gjörsamlega tooplaust ;)