sábado, 12 de agosto de 2006

Göngublogg og fl. :Þ

Jæja ég sagðist ætla að koma með göngublogg fyrir svolitlu síðan en tæknilegir örðugleikar komu í veg fyrir það ... svo hér kemur það :) Við María skelltum okkur með Útivistarræktinni á Kerlingarhnúk í Bláfjöllum síðasta miðvikudag, gönguleiðin var eitthvað á þeim slóðum þar sem 10 km gönguskíðabrautin er í Bláfjöllunum (haha good memories). Ferðin byrjaði ekki með besta móti, við vorum latar, með blöðrur og svo þurftu sumir mikið að pissa :Þ En það rættist úr þessu og eftir að við vorum búnar að ganga af okkur byrjunarletina þá reyndist þetta vera hin fínasta ganga. Auðvitað gat veðrið ekki haldist jafngott og það var búið að vera svo að það var niðadimm þoka og rigning annað slagið. Við vorum báðar einhverra hluta vegna ekki alveg rétt útbúnar fyrir þetta veður, kennir manni (þó maður eigi nú að vita það) að maður þarf alltaf að taka með sér útbúnað fyrir öll veður þegar maður gengur fjöll á Íslandi :) En jæja góð ganga allt í allt, villtumst ekki neitt (veðrið var nefnilega ansi líkt veðrinu þegar við gengum á Grímannsfellið í vor og villtumst !) og ég fékk meira segja smá harðsperrur í lærin :Þ
Á leiðinni upp fyrstu brekkuna, alltaf jafn erfitt að þurfa að storma strax upp brekku þegar maður er enn kaldur
Komnar upp á sléttuna og erum að ganga að tindinum sem við sáum ekki fyrir þoku (það er fjall fyrir aftan mig !)
Litli krúttlegi Útivistarræktarhundurinn :Þ
Á leiðinni til baka, þokan fór bara sisona og þarna sjáiði fjöllin sem voru í kring
En já þá er maður kominn í 3 daga frí :D Ekkert smá gott eftir 7 daga vinnutörn og það er búið að vera MIKIÐ að gera í vinnunni, maður nær aldrei að setjast niður til að borða heila máltíð og hafragrauturinn minn verður alltaf kaldur svo ég er búin að skipta yfir í brauð í morgunmat því það kólnar ekki á milli þess sem maður svarar í símann og hjálpar ferðamönnum. Brúðkaup á eftir og ég var í klippingu áðan og klippti á mig topp (again). Ég veit ekki alveg hvort að ég sé ánægð með þetta, á eftir að venjast toppnum aftur held ég. Annars fer ég líklegast lítið í göngu á sunnudaginn þar sem ég er búin að krækja mér í sár á báðar hásinarnar útaf einhverjum skóm sem ég var í um daginn :S meira klúðrið en maður leggur varla af stað í 30km göngu vitandi það að þetta á eftir hafa áhrif :S Annars er ég að spá í að fara á mánudaginn og kaupa mér mánaðarkort í Baðhúsinu, það er svo nálægt og þeir eru með pallatíma kl. 6:30 til 7:20 svo ég gæti mætt í hann áður en ég fer að vinna og kannski get ég dílað við næturverðina um að fá að mæta hálftíma seinna ef að þeir fá bara í staðinn að koma hálftíma seinna um kvöldið :Þ Ég kemst nefnilega aldrei að æfa þegar ég er á þessum 12 tíma vöktum, þegar ég kem heim að ganga 20 þá er ég bara ekkert í stuði fyrir ræktina, er algjörlega útkeyrð. Jæja kannski að maður fari að ýta við Orra, erum að fara í hinn vikulega brunch til Maggýjar ömmu.

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Gott að vita að hundurinn er í fullu fjöri, ég hafði pínu áhyggjur af honum í fyrra þegar hann leit út fyrir að hafa týnst.

Anónimo dijo...

haha já þetta grey var meira segja með í göngunni á Grímannsfell þar sem við villtumst :P