Það eru svo skemmtilegir þeir dagar þar sem maður hefur margt að hlakka til. Ég bókstaflega get ekki beðið eftir að byrja í skólanum :Þ er búin að kaupa allar bækur og fer 2svar á dag inn á Ugluna til að athuga hvort að einhverjir skipulagsgóðir kennarar séu ekki búnir að setja kennsluáætlunina inn ... það er ekki að gerast :S Ég var með einn kennara í spænskunni sem var alltaf búin að setja kennsluáætlunina inn löngu fyrir skólabyrjun og mér fannst það æði :Þ - jebb ég er svolítið crazy
Svo eru núna rúmar 3 vikur í Bootcamp. Vildi reyndar óska að það byrjaði bara núna 1. sept :S því þá hætti ég að vinna svo óreglulega en nei við verðum víst að bíða til 18. sept og ég safna bara spiki á meðan ; )
Ekki má svo gleyma Berlínarferðinni :Þ Ohh þetta verður geggjað, við Orri höfum aldrei áður farið til útlanda saman þrátt fyrir að vera búin að eyða næstum 4 árum saman ! Verðum á fínu hóteli og ég held að þetta verði bara voða kósý :)
Ég ætti svo auðvitað líka að vera farin að hlakka til jólanna en það verður eitthvað minni tilhlökkun þetta árið ... Ég næ ekki að sannfæra fjölskylduna mína um það að fara upp í bústað þriðja árið í röð :S Reglan var alltaf annað hvert ár en við fórum síðast af því að árið þar á undan var svolítið spes, pabbi fárveikur og okkur fennti næstum því inni og flúðum því degi fyrr heim og þurftum að berjast við veðrið og snjóinn alla leiðina heim.
En núna vilja þau ekki fara, mamma vill eiga jólahefðir líka heima og Eydís vill ekki fara af því henni leiðist svo upp í bústað. Pabbi vill svo heldur ekki fara því hann heldur að hann sé cursed eða eitthvað því síðustu 2 jól upp í bústað þá hefur eitthvað komið upp á, fyrst flensan og svo síðast brjósklos :S Ég veit ekki með Maríu en ætli hún vilji ekki vera heima til að geta verið með kærastanum ... Þá er bara ég eftir og ég er alveg til í að skilja Orra eftir heima aftur :Þ Kannski að ég leigi mér bara bústað (og bjóði kannski Orra með) og eyði jólunum bara þannig !
En já ég viðurkenni að það er kannski helst til snemmt að byrja að spá í þessu :Þ Ég ætla þó að reyna að vera súperskynsöm í ár og dreifa jólagjafakaupunum á nokkra mánuði ... Reyna að byrja í sept og eiga þá bara Orra eftir í desember. Það er alveg vonlaust að vera í prófum til 21. des og þurfa að vera að standa í jólagjafakaupum á meðan eða eftir prófin :S Svo setja öll þessi gjafakaup í desember mann bara á hausinn !
Haha jæja enginn annar farinn að spá í jólunum ?? :Þ nei bjóst heldur ekki við því :Þ
Annars bara Reunion í kvöld ! Verður rosa gaman að sjá alla aftur.
Hasta luego
viernes, 25 de agosto de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Mér finnst þessar jólapælingar ekkert of snemmar, enda bara 120 dagar til jóla :o)Svo er mjög sniðugt að dreifa þessum jólagjöfum niður á nokkra mánuði, ég veit að sumir klára öll jólainnkaup á sumrin, á sumarútsölunum. Mjög sniðugt, vildi að ég væri svona skipulögð stundum !
En skemmtu þér rosalega vel í kvöld, see yah :o)
Ég mundi helst vilja fara í Home Exchange um jólin en pabbi þinn er ekki sannfærður - Mér finnst sumarbústaðurinn líka heilla, en ég var búin að lofa Eydísi... svo það er hún sem þú þarft að vinna á þitt band ;-) ég er til í allt!
Var ég búin að segja þér hvað ég vil í jólagjöf?
Mamma
Ég er byrjuð á jólapælingum líka :) Samt ekkert svo svakalegum, keypti bara flug til London viku fyrir jól og ætla að versla allt þá :o) Og koddu bara með mér í laugar, það verður hvort eð er einhver að nota þessi boðskort áður en þau renna út. Við eigum til 1 eða 2 = 1 eða 2 vikur frítt í gymmið (eða sund)!
Publicar un comentario