- ég er hrikalega skipulögð á sumum sviðum
- ég týni miðum sem mér eru réttir með det samme (Guðrún María veit vel af því :Þ)
- ég elska að drekka vatn
- ég þoli ekki hávaða
- ég þarf að eiga þrjú eintök af lyklum af íbúðinni því oftast eru tveir týndir
- ég þoli ekki Idolið
- ég týni gleraugunum mínum oft á dag
- ég get ekki sofið ef ég skulda nokkra þúsundkalla og sé ekki fram á að geta borgað þá strax daginn eftir
- ég borða suma daga meira af súkkulaði heldur en mat
- ég fer á bókasafnið og les Lifandi Vísindi þegar ég vil fá frið frá umheiminum
- ég vildi óska þess að ég gæti keypt uppáhaldsmatinn minn tilbúinn út í búð svo ég þyrfti aldrei að elda
- ég myndi örugglega ráða einhvern til að þrífa LITLU íbúðina mína ef ég væri ekki svona viss um að allir myndu hlægja að mér (og svo skammast ég mín smá ;))
- ég á það til að gefa fólki/stofnunum pening þótt ég hafi ekki efni á því bara af því ég vorkenni svo þeim sem eiga bágt
- ég þoli ekki að fá sendan rusl/keðjupóst sérstaklega þann sem endar með því að segja að ég deyi innan nokkurra klst ef ég sendi hann ekki áfram
- ég á örugglega eftir að gráta í nokkra daga þegar María flytur til Sverge eftir áramótin !
- ég á eftir að gráta aðra nokkra daga þegar mamma, pabbi og Eydís yfirgefa mig næsta sumar
- ég er annaðhvort hundlöt eða rosa virk, virðist vera lítið um millivegi hjá mér
- ég þoli ekki að snúa við þegar ég er í fjallgöngu, verð að komast upp á topp
- ég sofna alltaf í sömu stellingunni á kvöldin
- ég er alltaf löt þegar ég er að leggja af stað í göngu og langar helst að keyra bara aftur heim :Þ
- ég skil ekki fólk sem finnst hlaup gott
- ég þoli ekki auglýsingar
- ég á það til að roðna út af ENGU
- borða kornflex með kakó
- elska HAFRAGRAUT
- ég er lúmskt mikið stjórnsöm og frek
Síðustu daga hefur fjöldinn sem kemur hingað inn TVÖfaldast, mér þætti mjög vænt um ef að fólk nennti að taka sér nokkrar sekúndur og segja hæ : )

5 comentarios:
híhí, kannski er fólk byrjað í skólanum og strax farið að finna sér eitthvað annað til að gera frekar en að læra, sem sagt skoða blogg!
Hæ :o)
haha já ætli það sé ekki málið, það er kominn vetur í fólk :P
Hehe já og hæ til þín Rebekka ;)
Og ég segi líka hæ :-) Mikið af listanum þínum er pottþétt genetískt en annað eru bara sjaldgæfir og eftirsóttir hæfileikar ;-) Hvað sem því líður, það er MJÖG mikilvægt að þekkja sjálfan sig vel, einn af mikilvægustu færniþáttum fyrir framtíðina, segja fræðingarnir.
Kveðja, mamma
hahahaha Íris þú ert skrýtin :) hahaha skemmtileg lesning þetta :)
Publicar un comentario