miércoles, 16 de agosto de 2006

Ein hlið af litlu broti mannkynssögunnar

Það er svolítið skrítið en kannski skiljanlegt að fréttaflutningurinn um stríðið milli Líbanon og Ísraela er að hafa undarlega mikil áhrif á mig. Þegar við vorum í Sarajevo þá hitti maður og talaði við svo marga sem að bjuggu í borginni á meðan Serbar sátu um hana í næstum 1000 daga ! Þau sögðu manni ótrúlega sögu sína; hvernig borgin var rafmagns, matar, vatns og gaslaus. Það var bókstaflega verið að reyna að murka lífið úr fólkinu með því að einangra það algjörlega.
Öll hús sem voru byggð fyrir 1992 eru sundurskotin og um alla borg má sjá "rósir Sarajevo" en það voru förin sem komu eftir loftskeytin þegar þau lendu á malbikinu.
Umsátur Serba um Sarajevo Um alla Sarajevo má sjá litla kirkjugarða, þetta er kirkjugarður Múslima í einum almenningsgarði.
Við fórum í mjög áhrifamikla skoðunarferð sem hostelið okkar stóð fyrir. Guide-inn hafði búið í borginni á þessum tíma. Þegar Serbar voru búnir að einangra Sarajevo frá umheiminum þá voru borgarbúar að deyja úr hungri og þorsta. Þá gerðu SÞ díl við Serba um að fá að opna flugvöll sem var á hernámssvæði þeirra við borgarmörkin og fengu þá að koma með mat (hlutur sem Sarajevobúar eru ekki sáttir við þar sem það kom í veg fyrir að Nato gerði flugárás á Serbanna til að hrekja þá í burtu). Því miður dugði það ekki til.
Það var ein leið til að ná í mat og það var að reyna að hlaupa yfir flugvöllinn í búð sem Króatíubúar voru með einhverja kílómetra frá. Þessar laumuferðir voru mjög hættulegar þar sem leyniskyttur Serba voru í hæðunum allt í kring og voru ekki í miklum vandræðum með að skjóta á þá sem reyndu þetta. Þá ákvað króatíski "herinn" að grafa göng undir flugvöllinn og opna þannig leið inn í borgina. Göngin voru hæst 160 cm á hæð, 1m á breidd og 800 metra löng. Göngin voru grafin í bílskúr hússins sem er lengra frá á myndinni, þakið er algjörlega þakið kúlnagötum Göngin voru grafin úr báðum áttum af mönnum með lítinn tækjabúnað. Íbúar Sarajevo höfðu bara skóflu og hjólböru ! Allann tímann á meðan verið var að grafa göngin vissi enginn hvort að þeir myndu ná að mætast þar sem samskipti þeirra á milli voru nánast ómöguleg.
Seinna meir fór í gegnum þessi göng, matur, rafmagn, gas, vatn og annað sem þurfti. Í fyrstu átti þetta að vera leyndarmál milli fárra háttsettra innan hersins en smám saman fréttist þetta um borgina og almennir borgarar fóru að leggja á sig ferðir að flugvellinum til að geta fengið að fara í gegnum göngin að kaupa mat. Til að komast að þeim þurfti að fara um "Dauðastræti" en á þeirri götu höfðu Serbar einstaklega gott færi á að skjóta fólk. Ein af rósum Sarajevo
Við fórum í húsið þar sem göngin voru grafin. Allt í kring voru kúlnagöt og rósir. Við stóðum fyrir framan húsið og þar var ein rós og fengum að vita það að akkúrat þarna höfðu 9 manns látist ... fleiri höfðu slasast. Við fengum að fara inn í 25 m hluta ganganna og þau eru svo lág að fullorðinn karlmaður þar að vera vel beygður í baki, í þokkabót voru þeir með allt að 40 kíló af nauðsynjavörum á bakinu. Á leiðinni í gegnum göngin
Í ferðinni fórum við svo líka í kirkjugarð Gyðinga sem er upp í hlíðinni. Hann var þakinn kúlnagötum en leyniskyttur Serba notuðu þennan garð til að liggja í felum.
Sundurskotinn legsteinn Síðasta stoppið í ferðinni var svo glæsilegur útsýnisstaður þar sem maður sá yfir alla borgina liggja í dalnum með hæðarnar á allar hliðar. Þarna allt í kring höfðu Serbarnir verið. Systurnar á síðasta stoppinu
Sarajevo er í 1. sæti yfir alla frábæra staði sem ég sá í ferðinni. Það var bara ótrúlegt að finna andann í borginni og allt lífið. Ég efast um að það sé margar borgir í heiminum sem hafa jafnmörg jöfn trúarbrögð. Þarna eru moskur, sýnagógur og kirkjur út um allt, nánast allar hlið við hlið. Maður borðar geggjað burek fyrir 50 kall og fer svo og fær sér geggjaðann kúluís á 25 kall kúluna. Svo verður maður að fara í hnetubúðina og kaupa poka með allskyns húðuðum hnetum :P
mmmm Burek :D
Zack (elskulegur strákur frá Manchester) að fá sér kafa, tyrkneskt kaffi sem er svo þykkt að sykurmolinn sekkur hægt ofan í.
Við kvöddum borgina leiðar, og vonandi fæ ég tækifæri til að koma aftur og vera þá lengur.
Fallega Sarajevo

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Áhugavert og á sinn hátt skemmtilegt blogg hjá þér Iris - manni finnst næstum að maður hafi verið þarna með þér.
Við verðum að finna tíma fljótlega fyrir gott mynda- og vídeó kvöld, þegar allir hafa nægan tíma til að spjalla í rólegheitum
Mamma

Anónimo dijo...

Frábært blogg, aldrei hefði mér dottið í hug að velja land eins og Sarajevo til að skoða, en eftir þessa frásögn þína, þá hljómar þetta heillandi land, með mörgu áhugaverðu að skoða.
En takk kærlega fyrir mig í gær, nammi nammi, var alveg frábært :o)