Ú la la Eva Longoria er ekki nema 1,57 m á hæð, maður þarf semsagt ekki að vera 1,70 til að vera fallegur ;)
Já maður uppgötvar margt merkiilegt þegar að það er rólegt í vinnunni :Þ
En nóg af slúðri og meira af aulanum mér ...
Hér á Sunnu dvelur núna strákur (kannski svona 23 ára) frá Austurríki, hann er svona voða saklaus og góður og er á ferðalagi aleinn. Hann er svona týpískur kandídat í það að hanga í gestamótttökunni og tala við mig (þoli ekki svoleiðis). Svo kemur hann hingað um daginn, stekkur inn í móttökuna og segist hafa sérstaka bón handa mér (ónei) og svo stynur hann því upp úr sér hvort ég væri til í að kíkja með honum á kaffihús einhvern tímann því hann langaði að kynnast Íslendingi og væri einn á ferðalagi (:S) Ohhh og ég er svo mikill asni og vildi ekki vera vond og leiðinleg við hann og sagði OK :S og nú spyr hann mig á hverjum degi hvenær ég sé laus (ughh) Ohh Aulinn ég :S
Já ganga í gær, myndir og göngublogg líklegast bara í kvöld ef ég nenni :P
Já ganga í gær, myndir og göngublogg líklegast bara í kvöld ef ég nenni :P

2 comentarios:
Hver segir að hæð hafi eitthvað með fegurð að gera ?? ;o) En já varðandi þennan gaur, þá væri ég skíthrædd við svona útlendinga aleina á ferð..... ég vona nú samt að hann sé bara fínn og vonandi finnurðu smá tíma fyrir hann...
Gangi þér svo vel í vinnunni...og hvar eru göngumyndirnar ??? hmmm....
Hún er sem sagt minni en ég :D Reyndar veit ég að það er alveg þónokkuð um það að hollívúdd stjörnur séu frekar lágar í loftinu, þeir hafa ýmiss trikk til þess að láta þær líta út fyrir að vera hærri "on film".
En verðuru ekki bara að taka einhvern með þér á stefnumótið ;) þá fær hann tvo íslendinga í staðinn fyrir einn, 2 f 1 :o)
Publicar un comentario